9.5 C
Selfoss

Ný tækifæriskort styrkja heilbrigðisþjónustu

Vinsælast

Samband sunnlenskra kvenna er með Sjúkrahússjóð, þar sem eingöngu eru gefnar gjafir úr honum til heilsugæslustöðvanna í HSU í Árnes og Rangárvallasýslu og á sjúkrahúsið.  Til að fjármagna sjóðinn þá gefum við út tækifæriskort á hverju ári og þá er úthlutað úr sjóðnum til tækjakaupa á ársfundi og nemur gjafaupphæðin í hvert skipti um einni milljón króna. Núna voru að koma fjögur ný tækifæriskort eftir listakonurnar Hjördísi Alexandersdóttur, Ingunni Jensdóttur og Sólrúnu Auðbertsdóttur. Kortin munu verða til sölu á öllum heilsugæslustöðvunum í þessum tveimur sýslum, einnig verður hægt að nálgast þau hjá formönnum kvenfélaganna og stjórnarkonum SSK. Hafa má samband við formann SSK, Sólveigu Þórðardóttur með tölvupósti ssk@kvenfelag.is.  Þessi fjögur kort saman í pakka munu kosta 2.500 krónur.

Nýjar fréttir