7.8 C
Selfoss

Vor í Árborg og barnamenningardagar Suðurlands

Vinsælast

Vor í Árborg hátíðin verður haldin í öllu sveitarfélaginu frá og með síðasta vetrardegi 22. apríl 2026 til og með sunnudagsins 26. apríl. Í ár verða Barnamenningardagar á Suðurlandi sömu daga og því leggjum við sérstaka áherslu á barnamenningu og höldum Barnamenningardaga í Árborg samhliða Vor í Árborg.

Barnamenningardagarnir verða settir formlega 22. apríl klukkan 17.00 í miðbæ Selfoss. Þá verður ljósmyndasýningin „Árborg með augum barna“ formlega opnuð. Auk þess verða dansatriði frá Dansakademíunni, Blásarasveit frá Tónlistarskóla Árnesinga leikur og nemendur Vallaskóla sýna siguratriði Skálftans 2025.

Síðan færist fjörið inn á Sviðið þar sem veitt verða verðlaun í ljósmynda – ljóða og stuttmyndakeppnum og þar verður einnig flutt söngatriði úr söngkeppni Zelsíuz.

Dagskrá barnamenningardaga er fjölbreytt og má m.a. Nefna myndasýningar leikskólabarna sem verða víðs vegar um sveitarfélagið, Gunnar Helgason í höfundaheimsókn á bókasafninu, opið hús hjá myndlistarfélaginu, barnabarnadag Félags eldri borgara, blómasmiðju í Horninu í miðbæ Selfoss og síðast en ekki síst verður Byggðasafnið með stórskemmtilegan viðburð þar sem brunabílar og slökkviliðsbúningar koma við sögu.

Allar nánari upplýsingar um Vor í Árborg og dagskrá barnamenningardaga er að finna á www.arborg.is

Nýjar fréttir