Dagný Brynjarsdóttir er kominn „heim“ en hún hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Selfoss sem gildir út tímabilið.
Dagný spilaði síðast með Selfossi sumarið 2020 en síðan þá hefur hún leikið með West Ham á Englandi. Hún var á tíma fyrirliði liðsins og hún var síðan valinn leikmaður tímabilsins hjá liðinu árið 2023.
Dagný hefur verið lykilleikmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár en hún spilaði síðast með liðinu á EM síðasta sumar. Dagný eignaðist sitt þriðja barn fyrr á þessu ári.
Hún á að baki 122 landsleiki og í þeim hefur hún gert 38 mörk.
„Við erum virkilega ánægð með að fá Dagnýju til liðs við okkur út tímabilið. Hún hefur æft með okkur og það sést strax hversu mikla hæfileika hún hefur. Hún hefur líka fallið mjög vel inn í hópinn. Hún er að vinna sig smám saman aftur í fullt leikform, þannig að við tökum þetta skref fyrir skref,” segir Jonathan Glenn, þjálfari Selfoss.
Velkomin heim Dagný!

