Það verður líf og fjör í Reykholti dagana 14.–15. ágúst þegar sveitahátíðin Tvær úr Tungunum verður endurvakin.
Fjörið hefst á föstudagskvöldinu kl. 18 með Grímsleikunum, vinsælu gröfuleikunum þar sem gröfustjórar etja kappi og spreyta sig á fjölbreyttum og skemmtilegum þrautum.
Á laugardeginum heldur dagskráin áfram þegar markaður Kvenfélags Biskupstungna verður opnaður í Aratungu kl. 13. Reykholtshlaupið fer af stað kl. 14 og kl. 15 hefjast Hálandaleikarnir, hörkuskemmtilegir kraftaleikar þar sem keppendur reyna með sér í fjölbreyttum aflraunum og þrautum.
Klukkan 16:30 bjóða Brunavarnir Árnessýslu upp á froðurennibraut fyrir yngri kynslóðina sem er frábær skemmtun.
Um kvöldið verður svo slegið upp alvöru sveitaballi í Aratungu þegar Greifarnir stíga á svið og loka hátíðinni með pompi og prakt.
Tvær úr Tungunum eru mættar aftur – sjáumst í Reykholti 14.–15. ágúst!

