-2.8 C
Selfoss

Flottur árangur hjá Berserkjum á Reykjavík Open

Vinsælast

Glímumótið Reykjavík Open – Sub Only 4 fór fram þann 31. október síðastliðinn í húsakynnum Reykjavík MMA. Glímufélagið Berserkir átti þar fimm öfluga fulltrúa sem stóðu sig með stakri prýði.

Þau Ingvar Freyr Símonarson og Hekla Dögg Ásmundsdóttir nældu sér bæði í bronsverðlaun í sínum flokkum. Árangur Ingvars er sérstaklega eftirtektarverður þar sem þetta var hans fyrsta mót, en hann vann allar sínar glímur með uppgjafartaki fyrir utan tap í undanúrslitum.

Fannar Júlíusson hafnaði í fjórða sæti í feikisterkum flokki og sýndi miklar framfarir í glímunni hjá sér. Þá enduðu þeir Daníel Sigurðsson og Þröstur Valsson báðir í fimmta sæti eftir harða keppni.

Úrslit Berserkja á mótinu:

Ingvar Freyr Símonarson: 3. sæti (-2 ár, +85 kg)
Hekla Dögg Ásmundsdóttir: 3. sæti (+2 ár, +65 kg)
Fannar Júlíusson: 4. sæti (+2 ár, -85 kg)
Daníel Sigurðsson: 5. sæti (+2 ár, -75 kg)
Þröstur Valsson: 5. sæti (+2 ár, +85 kg)

Nýjar fréttir