HSK-mótið í sveitakeppni í bridge fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) laugardaginn 7. nóvember sl. Þátttaka var með eindæmum góð en alls mættu 16 sveitir til leiks, sem er líklega nýtt þátttökumet á mótinu.
Sveit Hrannars bar sigur úr býtum en hana skipuðu Hrannar Erlingsson, Gunnar Björn Helgason, Magnús Eiður Magnússon og Heimir Árni Erlendsson.
Sérstaka athygli vakti frammistaða Heimis Árna, sem er ungur og afar efnilegur spilari frá Skíðbakka í Landeyjum. Hann hóf að spila bridge fyrir aðeins um ári síðan og hefur tekið miklum framförum á skömmum tíma. Heimir útskrifaðist frá FSU í fyrra og má því segja að hann hafi verið á heimavelli þegar hann fagnaði sigrinum með félögum sínum.
Í öðru sæti varð sveit Gervigreindar, skipuð Sigurði Björgvinssyni, Sveini Ragnarssyni, Hróðmari Sigurbjörnssyni og Karli Logasyni.

Í þriðja sæti varð sveit Suðurlands, sem jafnframt tryggði sér HSK-meistaratitilinn. Sveitina skipuðu Kristján Már Gunnarsson, Runólfur Þór Jónsson, Björn Snorrason og Guðmundur Þ. Gunnarsson.

Mótið tókst vel í alla staði og er ánægjulegt að sjá þann mikla áhuga sem er á sveitakeppni í bridge á Suðurlandi.
Keppnisstjóri var Þórður Ingólfsson og mótsstjóri Garðar Garðarsson.
Nánari úrslit: HSK-mótið í sveitakeppni 2026 – Bridgesamband Íslands

