Ég er rótgróinn Rangæingur og stoltur Sunnlendingur. Þó ég búi á Hellu þá sæki ég vinnu víða um Suðurlandið. Ég starfa í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli auk þess sem ég starfa hér á Selfossi í þjónustu við fatlað fólk. Ég hef starfað á Selfossi og í kringum Árborgarsvæðið í rúm 3 ár, við fjölbreytt störf, og á þeim tíma fengið að kynnast samfélaginu nokkuð vel.
Atvinnulífið hér blómstrar, líkt og flest ykkar eflaust vita, þá er mikið úrval af fjölbreyttum störfum. Atvinnutækifærum hefur fjölgað frá því ég var að alast upp og það er virkilega jákvæð þróun. Það skapar fleiri möguleika fyrir ungt fólk til að byggja upp framtíð á svæðinu. Það er þó alltaf rými fyrir bætingar í þessum málaflokki þegar samfélagið þróast á þeim hraða sem við sjáum í dag.
Á Selfossi er boðið upp á fjölbreytta þjónustu og það er líklega ekki til sá Sunnlendingur sem kannast ekki við það að þurfa að skreppa á Selfoss öðru hvoru! Þjónustustigið hér er hátt, bæði fyrir íbúa Árborgar og aðra Sunnlendinga, og fer sífellt vaxandi. Uppbyggingin er mikil og það er virkilega gaman að sjá svæðið taka breytingum. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá ungt fólk kaupa sína fyrstu eign og festa rætur hér.
En þegar við tölum um framtíð Suðurlands þá finnst mér mikilvægt að við horfum ekki bara á fjölda íbúa, nýbyggingar eða fjölda starfa. Við þurfum líka að spyrja okkur: Hvernig samfélag erum við að byggja upp og fyrir hverja?
Í ljósi umræðunnar undanfarið langar mig sérstaklega að ræða menntamál ungs fólks.
Sjálf hef ég verið svo heppin að geta sótt stóran hluta af mínu námi hér á Suðurlandi. Eftir að hafa lokið grunnskólagöngu árið 2017 valdi ég að fara í Menntaskólann að Laugarvatni. Það val byggðist ekki bara á því hversu frábær mér finnst sá skóli vera, heldur hafði staðan á heimavistinni við FSu líka áhrif á ákvörðunina mína.
Ég hafði lítið bakland á Selfossi, vildi alls ekki fara á leigumarkaðinn aðeins 16 ára gömul auk þess sem það voru alltof fáar strætóferðir í boði. Samgöngurnar hafa lítið breyst síðan þá sem og staða heimavistarinnar.
Þetta er eitthvað sem ég held að mörg ungmenni á landsbyggðinni geti tengt við. Það getur verið flókið að sækja nám, tómstundir eða jafnvel vinnu þegar maður kemur langt að – þetta á ekki bara við um framhaldsskólana.
Eftir að framhaldsskólanámi lýkur sækir stór hluti ungs fólks sér háskólamenntun. Þar tel ég að við eigum enn mikið sóknarfæri. Það væri hægt að bæta verulega úr framboði á fjarnámi og skapa þannig tækifæri fyrir fólk til að mennta sig óháð búsetu. Ég held að það séu mikil tækifæri fólgin í því að gera fólki auðveldara að stunda fjarnám og nýta þá möguleika sem tæknin býður upp á í dag.
Það er alltof algengt að ungt fólk þurfi að flytja til að sækja sér háskólamenntun, jafnvel þótt það hefði helst viljað vera áfram í heimabyggð. Og þegar fólk flytur í burtu er ekki sjálfgefið að það snúi aftur að námi loknu. Þarna held ég að við séum að missa af miklum tækifærum.
Mig langar þó að taka fram að aðgengi að námsrýmum og próftökustöðum á Suðurlandi er til fyrirmyndar og mikilvægt að halda áfram að byggja á þeim góða grunni.
Að mínu mati hefur Selfoss og Árborgarsvæðið upp á margt að bjóða fyrir ungt fólk. Hér eru fjölbreytt störf, góð þjónusta, félagslíf og sífellt fleiri möguleikar. En það sem skiptir kannski mestu máli er að við höldum áfram að skapa samfélag þar sem ungt fólk sér tækifæri til framtíðar.
Að lokum langar mig að minna ykkur öll á mikilvægi þess að hlúa að unga fólkinu í samfélaginu, þar sem samfélög án barna og ungs fólks á sér enga framtíð. Höldum áfram að búa til frábært samfélag þar sem ungt fólk vill snúa aftur.
Rebekka Rut Leifsdóttir Söring,
rödd yngri kynslóðarinnar á málþinginu Selfoss og Suðurland, hvert stefnir?

