-2.8 C
Selfoss

Rafmagnað dúó í Bókakaffinu á Selfossi

Vinsælast

Laugardaginn 14. nóvember kl. 16:30 mun dúóið Harp & Arp vera með tónlistarspuna í Bókakaffinu á Selfossi. Harp & Arp er hugarfóstur hörpuleikarans Katie Buckley og hljóðgervlaleikarans Jesper Pedersen. Saman flytja þau tónlistina á hljóðbreytta hörpu og hljóðgervil. Tónlist Harp & Arp verður til á staðnum, í djúpstæðu samtali milli flytjendanna tveggja. Útkoman er tónlist sem fellur undir ambient-stefnuna, þar sem áhersla er bæði lögð á tónræna byggingu og óhlutbundin ferðalög um heim hljóða og hljóðáferða. Harp & Arp gaf út stuttskífuna The Shortest Day árið 2021 og vinnur nú að breiðskífu. Við lofum ljúfri og rafmagnaðri stemmningu á þessum tónleikum. Aðgangur er ókeypis. Öll velkomin.

Nýjar fréttir