16.1 C
Selfoss

Ókeypis veiðidagur í Soginu við Alviðru

Vinsælast

Veiðidagur Alviðru verður haldinn laugardaginn 15. ágúst og af því tilefni bjóða Alviðrunefnd og veiðifélagið Starir áhugasömum að fræðast um veiði og spreyta sig í Soginu án endurgjalds.

Sogið er rómað fyrir náttúrufegurð og stórfiska og eru allir velkomnir á veiðidaginn. Veitt verður á flugu og skal laxi sleppt aftur.

Mæting er við Alviðrubæ kl. 14 þar sem sagt verður frá veiðum í Soginu. Að því loknu verður þátttakendum skipt í hópa og þess gætt að allir fái tækifæri til að veiða á helstu veiðistöðum svæðisins. Leiðsögumaður frá veiðifélaginu Störum verður á staðnum og veitir þátttakendum ráðleggingar.

Dagskránni lýkur um kl. 17 en að veiði lokinni verður boðið upp á kakó, kaffi og kleinur í Alviðru.

Óskað er eftir að þátttakendur tilkynni nöfn veiðimanna með tölvupósti á s@sigurdurarni.is. Ef þátttaka verður mikil ganga þau fyrir sem skrá sig fyrst.

Nýjar fréttir