15 C
Selfoss

Systurnar frá Mið-Mörk á verðlaunapall á Evrópumóti Special Olympics

Vinsælast

Systurnar Sigríður og Hulda Sigurjónsdætur frá Mið-Mörk í Rangárþingi náðu frábærum árangri á Evrópumóti Special Olympics í bekkpressu sem fram fór í Druskininkai í Litháen 2. ágúst síðastliðinn. Sigríður varð Evrópumeistari í sínum flokki og Hulda vann til silfurverðlauna.

Þátttaka systranna markaði jafnframt tímamót en þær eru fyrstu íslensku keppendurnir með fötlun til að taka þátt á Evrópumóti í þessari grein.

Sigríður tryggði sér gullverðlaunin með því að lyfta 77,5 kílóum og jafnaði þar með eigið Íslandsmet. Hulda hafnaði í öðru sæti eftir að hafa lyft 75 kílóum, sem jafnar hennar besta árangur í bekkpressu til þessa.

Árangur þeirra er stór áfangi fyrir íslenskar kraftlyftingar og starf Special Olympics á Íslandi. Að baki árangrinum liggur mikil vinna, metnaður og dugnaður og með þátttöku sinni ryðja systurnar jafnframt brautina fyrir fleiri íslenska íþróttamenn með fötlun sem stefna að þátttöku í alþjóðlegum keppnum.

Aðstandendur systranna hafa komið á framfæri þakklæti til allra þeirra sem stutt hafa við bakið á þeim á þessari vegferð. Þá kemur fram að vegna góðs stuðnings og ábyrgrar fjármálastjórnunar Sigríðar hafi fjármunir úr fyrri söfnun dugað til að standa straum af kostnaði við ferðina til Litháens.

Sveitarfélagið Rangárþing eystra hefur óskað Sigríði og Huldu innilega til hamingju með árangurinn og segir þær sveitarfélaginu til sóma og góðar fyrirmyndir í íslensku íþróttalífi.

Nýjar fréttir