Núna yfir sumarmánuðina og út septembermánuð er Fischersetrið opið daglega frá 13:00 til 17:00.
En yfir vetrarmánuðina er það opnað samkvæmt óskum. Það sem af er sumri hefur aðsóknin verið með ágætum eða um 15-20 gestir á dag og langflestir þeirra erlendir ferðamenn sem ferðast á eigin vegum. Flestir gestanna eru frá Bandaríkjunum en annars koma gestirnir frá öllum heimsálfum og alltaf eitthvað um að Íslendingar komi. Sumir koma gagngert til landsins að heimsækja Fischersetur og margir fara og votta Bobby Fischer virðingu sína og heimsækja gröf hans við Laugardælakirkju, en þar er hann jarðsettur.
Gestir hafa sagt að Fischersetur sé með áhugaverðustu skáksöfnum í heiminum, ekki síst hvað varðar einn stærsta viðburð skáksögunnar, heimsmeistaraeinvígi allra tíma eins og það er kallað milli Boris Spassky og Bobby Fischer 1972 í Laugardalshöll í Reykjavík.
Stundum hefur verið boðið hefur verið upp á skákkennslu í Fischersetri fyrir grunnskólabörn í Árborg og nágrannasveitarfélögum.
Einnig má nefna að SSON- Skákfélag Selfoss og nágrennis er með skákæfingar vikulega í Fischersetri á veturna og eru allir velkomnir, ungir sem aldnir.


