Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli hefst á morgun, miðvikudag, 26. ágúst og fagnar hátíðin í ár 20 ára afmæli. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður á Hvolsvelli og stendur yfir í fimm daga, eða til 30. ágúst. Fjölbreytt dagskrá er í boði alla helgina fyrir fólk á öllum aldri og líkt og undanfarin ár er aðgangur að hátíðinni og viðburðum hennar ókeypis.
„Það stefnir í fínasta veður og dagskráin stútfull. Íbúar hafa verið að undirbúa skreytingar og stemning fyrir súpuröltinu sem er ótrúlega skemmtileg hefð. 10.bekkur Hvolsskóla og KFR nýtir svo hátíðina í fjáröflun og leggur mikla vinnu í framkvæmdina líka,“ segir Sigurmundur Páll Jónsson, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra í samtali við Dagskrána.
Hátíðarhöldin hefjast með upphitun í Stóru-Mörk á morgun þar sem boðið verður upp á fyrsta forsmekkinn af hátíðarsúpunni. Á fimmtudaginn mega gestir búast við mikilli litagleði í bænum þegar íbúar skreyta hverfin sín í sínum sérstöku hverfislitum. Um kvöldið er boðið upp á skemmtun í stóra tjaldinu þar sem Hlynur trúbador, Saga Garðars og Fríða Hansen halda uppi góðri stemningu.
Dagskrá helgarinnar
Föstudagurinn byrjar á ljósbolta í íþróttahúsinu fyrir yngri kynslóðina og svo Búbbluhlaupi fyrir þá eldri síðdegis. Um kvöldið fer fram hið þekkta og vinsæla súpurölt. Þá eru íbúar og fyrirtæki í bænum dugleg við að opna dyr sínar og bjóða gestum og gangandi upp á ýmsar tegundir af heimagerðum súpum.
Laugardagurinn 29. ágúst verður þéttskipaður. Um morguninn stendur Kvenfélagið Eining fyrir flóamarkaði og kaffisölu í Hvolnum, auk þess sem Naflahlaupið verður þá ræst. Eftir hádegi fer fram fjölskylduskemmtun á miðbæjartúninu þar sem hátíðin verður formlega sett. Seinni partinn verður opin vinnustofa hjá Sigrúnu Jónsdóttur listmálara að Ásvelli í Fljótshlíð og í Sveitabúðinni Unu mun ítalsk-íslenska tríóið Delizie Italiane flytja tónlist.
Laugardagskvöldið hefst á brekkusöng undir stjórn Guðrúnar Árnýjar í tjaldinu, en að honum loknum lýsir flugeldasýning upp himininn yfir Hvolsvelli. Að lokum stígur Stuðlabandið á stokk á Kjötsúpuballinu ásamt Friðriki Dór og Páli Óskari. Vert er að taka fram að 18 ára aldurstakmark er á ballið og ekki leyft að taka áfengi með inn. KFR sér um alla veitingasölu á laugardagskvöldinu í fjáröflunarskyni.
Sunnudaginn 30. ágúst lýkur hátíðinni á rólegri nótum. Þá leiðir Ísólfur Gylfi Pálmason fræðandi menningargöngu um Hvolsvöll og vinnustofan að Ásvelli verður opin áfram fyrir þá sem vilja njóta listar. Krakkarnir fá þó eitthvað fyrir sinn snúð þann daginn en Brúðubíllinn kemur á miðbæjartúnið eftir hádegið og skemmtir þeim þar.
Meðfylgjandi myndir eru frá Kjötsúpuhátíðinni í fyrra. Myndir: Aðsendar.

















