Haustgildi – menning er matarkista verður haldin á Stokkseyri fyrstu helgina í september í ár. Hátíðin hefur verið haldin seinustu fimm ár á Stokkseyri. Hátíðin er bókmenntahátið Bókabæjanna Austan fjalls og hafa fjölmargir rithöfundar komið og heimsótt Stokkseyri þessa fyrstu helgi í september.
Í ár munu eftirfarandi rithöfundar taka þátt:
Nína Ólafsdóttir, Ingi Markússon, Lóa H. Hjálmtýsdóttir, Una Margrét Jónsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Ægir Þór.
Aðalviðburðurinn á Haustgildi í ár verður upplestur Lóu H. Hjálmtýsdóttur og Unu Margrétar Jónsdóttur. Harpa Rún Kristjánsdóttir, rithöfundur, ritstjóri og útgefandi, heldur utan um spjall um skrif þeirra og veltir fyrir sér gildi þess að kátína og komedía fái að njóta sín í samtímanum.
Tónlist hefur svo alltaf verið hluti af Haustgildi. Eyjólfur Eyjólfsson og Luke Starkey riðu á vaðið á fyrsta Haustgildi og slógu tóninn fyrir það hvernig tónlist myndi hljóma á Haustgildi. Í fyrra voru það Ingibjörg Elsa Turchi, Hróðmar Sigurðsson og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir sem spiluðu svo eftirminnilega tónleika í Stokkseyrarkirkju. Þau Ingibjörg og Hróðmar spila svo aftur á Haustgildi í ár á Fjöruborðinu laugardaginn 5.9. kl. 15 ásamt Magnúsi Trygvasyni Eliasen trommara.
Jónas Sig og hljómsveit spila svo á Haustgildi í ár. Tónleikarnir hefjast í ár kl. 17 á sunnudeginum 6.9. í Stokkseyrarkirkju. Markús & the diversion sessions munu hita upp. Jónas þarf vart að kynna. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið íslenskrar tónlistar með hljómsveitinni Sólstrandagæjunum en svo skaut honum aftur upp á stjörnuhimininn þegar hann gaf frá sér plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Hún kom út 2007 og nokkrum árum seinna gaf hann út efni sem hann hafði unnið með Lúðrasveit Þorlákshafnar, sínum heimabæ. Mögnuð textagerð og sterkar melódíur hafa verið einkennandi fyrir tónlist Jónasar sem nær að snerta streng í íslenskri þjóðarsál.
Markús Bjarnason hefur komið víða við í íslenskri tónlist. Hann hefur verið í fararbroddi hljómsveita á borð við Sofandi og Skáta. Jafnframt hefur hann unnið að sínu sólóefni. Hljómsveitin hans Diversion Sessions hefur spilað með honum í ýmsum myndum í mörg ár. Núna er hljómsveitin að gefa út glænýtt efni sem hefur fengið góðar viðtökur hjá hlustendum.
Miðasala er á tix.is.
Eins hefur alltaf verið markaður á Haustgildi enda sannarlega hluti af upphaflegu hugmyndinni á bakvið hátíðina, að geta boðið upp á framleiðslu og vörur úr nágrenninu. Listamenn á Stokkseyri hafa líka tekið þátt í Haustgildi með því að opna dyr á galleríum sínum þessa helgi sem Haustgildi stendur. Heba keramík, Gussi Gallerí, Gallerí Gimli og Gallerí Svartiklettur eru þau frábæru gallerí sem eru á Stokkseyri og verða opin þessa helgi.
Þau sem standa á bakvið Haustgildi eru Bókabæirnir austanfjalls sem hafa fengið styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands til að standa að hátíðinni. Sveitarfélagið Árborg hefur líka stutt hátíðina með ráð og dáð.
Frekari upplýsingar á haustgildi.is.



