11.2 C
Selfoss

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli á Sviðinu  

Vinsælast

Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni verður haldið upp á tímamótin með afmælisveislum víða um land, þar á meðal á Selfossi. Fimmtudaginn 3. september býður félagið stuðningsfólki, sjálfboðaliðum, félagsmönnum og öðrum velunnurum til veislu á Sviðinu frá kl 17 til 19.
Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem læknast eða lifa með krabbameini og að líf og lífsgæði þeirra og aðstandenda þeirra séu sem best.
Fáir vita að Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé. Starfsemin er möguleg vegna stuðnings frá einstaklingum og fyrirtækjum í landinu. Þar skipta Mottumars og Bleiku slaufan miklu máli, en ekki síst frá stór hópur dásamlegra Velunnara sem styðja okkur mánaðarlega.

 „Í ár á félagið 75 ára afmæli og við viljum nýta þau tímamót til að þakka þessum dyggu stuðningsaðilum, mánaðarlegum styrktaraðilum, öðrum velunnurum, sjálfboðaliðum og félagsmönnum aðildarfélaga um allt land – þar á meðal félögum í Krabbameinsfélagi Árnessýslu – sem er eitt öflugasta aðildarfélag Krabbameinsfélagsins. Það er jú þessi dýrmæti stuðningur sem gerir okkur kleift að halda úti okkar mikilvægu starfsemi,“ segir Árni reynir Alfreðsson í samtali við Dagskrána.

Viðburðurinn er ætlaður að fagna áföngum sem hafa náðst, njóta góðra veitinga og skemmtiatriða frá Jóni Ólafssyni tónlistarmanni, sem verður veislustjóri og Hildi Völu Einarsdóttur, söngkonu.

„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn. Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðninginn í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning. Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð,segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Hægt er að skrá sig á afmælishátíð Krabbameinsfélag Íslands hér:

Skráðu þig á viðburðinn:
75 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands

Nýjar fréttir