7.8 C
Selfoss

360 hotel opnar aftur eftir uppbyggingu

Vinsælast

360 hotel í Flóahreppi hefur opnað dyr sínar á ný eftir rúma tveggja ára lokun vegna umfangsmikillar uppbyggingar. Opnunin markar nýtt upphaf í starfsemi fimm stjörnu hótelsins.

360 hotel er rekið af tveimur fjölskyldum en hjónin Leó Árnason og Þórunn Guðmundsdóttir ásamt börnum sínum hafa unnið að uppbyggingu hótelsins frá nóvember 2024. Seinni part árs 2025 bættust Ólafur Þór Vilhjálmsson og Hrefna Bachmann ásamt börnum sínum í hópinn og er hótelið nú rekið af fjölskyldunum tveimur. Árni Leósson er hótelstjóri.

„Viðbrögðin voru alveg mögnuð við opnunina, þetta er allt að smella saman á mjög fallegan hátt,“ segir Hrefna Bachmann, meðeigandi hótelsins, en hótelið var opnað fyrir gestum 5. október sl.

Áður fyrr var starfsemin eingöngu á neðri hæð hótelsins með einungis 13 herbergjum en við uppbygginguna var byggð efri hæð og viðbygging. Hótelið er nú með 31 ný og endurbyggð herbergi allt frá 27 fermetrum yfir í 100 fermetra að stærð. Auk herbergjanna er meðal annars líkamsræktarstöð, bíósalur, leikherbergi, shuffleboard, borðspil og veitingastaður þar sem Hinrik Lárusson er yfirkokkur.

Við uppbyggingu verður einnig opnað Spa sem verður opnað eftir tvær til þrjár vikur. Þar má meðal annars finna tvær sánur, þrjá potta, hvíldarherbergi og jógaherbergi.

„Það var alveg greinileg eftirspurn eftir fimm stjörnu hóteli hérna á Suðurlandi. Það er svo mikið í boði hérna á Suðurlandi og markmið okkar er að styðja við það,“ segir Sara Sigríður Ólafsdóttir, meðeigandi hótelsins, í samtali við Dagskrána.

Nýjar fréttir