Matgæðingur vikunnar er Tryggvi Sigurberg Traustason.
Takk fyrir áskorunina! Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að rétti sem getur varla klikkað. Hann hentar jafnt sem góður kvöldmatur og í skemmtilegt teiti með vinum og fjölskyldu. Uppskriftin er mín eigin og ég hef verið að þróa hana undanfarin ár. Rétturinn er einfaldur í undirbúningi, bragðríkur og alltaf jafn góður!
Lúxusseðla
Hráefni
- Um 500 g hakk
- ½ krukka af salsasósu
- ½ dós af rjómaosti
- Mozzarellaostur, eftir smekk
- Pítsuostur, eftir smekk
- Mexíkóostur, rifinn yfir eftir smekk
- Salt, eftir smekk
- Chilikrydd, eftir smekk
- Doritos í svörtum eða bláum poka, til að bera fram með
Aðferð
Byrjið á að kveikja á ofninum (180-200 gráður). Steikið hakkið á pönnu þar til það er eldað í gegn. Færið það síðan yfir í skál og blandið salsasósu og rjómaosti saman við.
Dreifið blöndunni í botninn á eldföstu móti. Setjið mozzarellaost og pítsuost yfir og rífið að lokum Mexíkóost ofan á.
Síðasta skrefið áður en rétturinn fer í ofninn, og að mínu mati það mikilvægasta, er að krydda vel með salti og chilikryddi.
Setjið mótið í ofninn og bakið þar til osturinn er bráðinn og orðinn gullinbrúnn.
Berið fram með Doritos í svörtum eða bláum poka. Gott er að nota skeið til að setja eðluna á snakkið svo allt það góða komist með í hverjum bita!
Að lokum skora ég á Skarphéðin Stein Sveinsson. Hann er yndislegur kokkur og það væri gaman að fá uppskrift frá honum!

