9.5 C
Selfoss

Suðri fagnar 40 ára afmælisári

Vinsælast

Íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi, Suðri, hefur vaxið mikið á undanförnum árum og nú æfa þar iðkendur fjölbreyttar íþróttir. Í ár fagnar félagið 40 ára afmæli. Í tilefni þess heldur félagið upp á Íslandsmeistaramót í boccia á Selfossi.

Dagskráin ræddi við Þórdísi Bjarnadóttur en Þórdís hefur komið að starfinu um árabil. Hún var formaður Suðra frá 2011 til 2016 og gegndi síðar hlutverkum ritara og gjaldkera. Hún gekk úr stjórninni í mars síðastliðnum en tekur enn virkan þátt í að aðstoða og skipuleggja.

Íþróttadeild innan UMFS

Suðri var stofnað þann 22. febrúar 1986 og fagnar félagið því 40 ára afmæli. Frá upphafi var íþróttafélag fatlaðra á Suðurlandi, Suðri, sérfélag undir HSK en í febrúar 2025 gekk félagið inn í Ungmennafélag Selfoss sem deild innan ungmennafélagsins.

Þórdís segir samstarfið alveg frá upphafi við ungmennafélagið hafa verið til fyrirmyndar og lýsti stuðninginn ómetanlegan.
„Þetta samstarf er svo gríðarlega mikilvægt og það er svo mikill vilji innan ungmennafélagsins til að aðstoða okkur, hjálpa okkur og finna lausnir,“ segir Þórdís.

Í dag sitja þau Ófeigur Ágúst Leifsson formaður, Bryndís Jónsdóttir gjaldkeri, Gunnhildur Þórðardóttir ritari og Guðbjörg Gína Pétursdóttir meðstjórnandi í stjórn. Jóhanna Kristín Þorvarðardóttir er meðstjórnandi og Kristín Lára Sigurðardóttir er fulltrúi iðkenda.

Fótboltastrákar Matthías Máni, Jón Ingi, Reynir og Eðvald

Stórmót á Selfossi

Í tilefni 40 ára afmælisins fer Íslandsmeistaramót í boccia fram á Selfossi helgina 31. október og 1. nóvember næstkomandi. Mótið mun fara fram bæði í Vallaskóla og Iðu og gert verður ráð fyrir allt að 180 keppendum frá félögum um land allt.

Að loknu móti sunnudagskvöldið 1. nóvember fer fram glæsilegt lokahóf fyrir iðkendur á Hótel Selfossi. Koppafeiti ætlar að spila fyrir dansi og hótelið sér fyrir glæsilegu hlaðborði. Einnig stendur til að bjóða fyrrverandi formönnum félagsins að taka þátt í hátíðarhöldunum.

Þórdísi finnst sérstaklega gaman að fylgjast með iðkendum á mótum og segir andrúmsloftið þar einstakt. Keppnisandinn sé mikill en jafnframt einkennist keppnin af einlægum stuðningi og hvatningu keppenda, jafnvel þótt þeir séu andstæðingar á vellinum.

Fjölbreyttara starf með árunum

Starfsemi Suðra hefur þróast mikið frá stofnun félagsins, en fyrstu árin var aðallega boðið upp á sund og borðtennis. Smám saman hafa bæst við fleiri íþróttagreinar og í dag geta iðkendur meðal annars stundað boccia, sund, fótbolta, taekwondo, golf, lyftingar og frjálsíþróttir.

Eitt af því sem Þórdís er sérstaklega ánægð með er fjölgun barna í starfinu. Hreyfifjörið, sem er ætlað fötluðum börnum á grunnskólaaldri, er nú fjölmennasti hópur félagsins með 21 barn.

Þórdís segir að árið 2011 hafi hún og eiginmaður hennar byrjað að reyna að fá börn á þessum aldri til að stunda íþróttir með félaginu, en þá hafi enginn mætt. Árið 2014 hafi þátttaka farið að aukast í kjölfar verkefnisins Allir með á vegum ÍSÍ og UMFÍ.

Skortur á aðstöðu og þjálfurum

Þrátt fyrir jákvæða uppbyggingu Suðra segir Þórdís helstu áskorunina vera skort á æfingaaðstöðu. Hún segir erfitt sé að fá tíma í íþróttahúsum og tímasetningar ekki alltaf henta þörfum iðkendanna.

Þórdís segir mikilvægt að iðkendur fái að æfa á réttum tíma. Nú í haust hefur Hreyfifjörið fyrir börn á grunnskólaaldri fengið aðstöðu í gamla Sandvíkurskóla á skólatíma þar sem börnin geta komið beint úr skólastarfi með stuðningsfulltrúum sínum og fengið tækifæri til að stunda íþróttir við hentugri aðstæður.
„Þetta tel ég vera gríðarlega stórt skref í því að efla þetta starf með börnunum er að veita okkur tíma sem hentar þessum börnum. Ekki í hádeginu á sunnudögum eða á kvöldin eða eitthvað slíkt.“

Það er ekki einungis skortur á æfingaaðstöðu heldur segir Þórdís það oft vera erfitt að finna þjálfara. Engin raunveruleg skýring er á því hvers vegna en bendir Þórdís á mikilvægi þess að efla fræðslu um íþróttir fatlaðs fólks og fjölga þjálfurum sem hafa áhuga á starfinu. Að hennar mati geta óöryggi og þekkingarleysi staðið í vegi fyrir því að þjálfarar bjóði sig fram.

„Það eru líklega margir sem vita ekkert um hvað þetta snýst en þetta snýst ekkert um neitt annað en að þjálfa börn. Að þjálfa fötluð börn er ekkert öðruvísi eða erfiðara heldur en að þjálfa önnur börn,“ segir Þórdís.

Golfhópurinn AFtari röð Eðvald, Árni og Óskar Ingi Fremri röð; María, Telma og Sigríður Erna. Mynd: Aðsend.

Mikilvægi sjálfboðaliðastarfa

Undirbúningur stórmótsins kallar á talsverða vinnu og félagið leitar eftir stuðningi samfélagsins. Þörf er á sjálfboðaliðum við meðal annars dómgæslu, ritarastörf og afgreiðslu, auk þess sem fyrirtæki geta stutt við mótið með styrkjum og vinningum.

Þórdís segir sjálfboðaliðastarf mikilvægan þátt í því að halda úti öflugu íþróttastarfi. Hún bendir þó á að oft hvíli mikil ábyrgð á fáum einstaklingum og mikilvægt sé að fleiri komi að starfinu svo hægt sé að deila verkefnum og koma með nýjar hugmyndir.

Þótt áskoranirnar séu ýmsar er hún stolt af þeirri þróun sem orðið hefur innan Suðra. Hún segir samfélagið hafa tekið iðkendum vel og leggur áherslu á mikilvægi góðs samstarfs við Ungmennafélag Selfoss og aðra íþróttahreyfingu.

Stærsta von hennar til framtíðar fyrir félagið væri að komið yrði upp fjölíþróttahúsi fyrir starfsemi fatlaðra. Þar til það verður að veruleika vill hún fyrst og fremst sjá betri aðstöðu, hentugri æfingatíma og fleiri þjálfara, auk þess að iðkendur innan Suðra séu í sama forgangi og allir, svo allir hafi raunverulegt tækifæri til að taka þátt í íþróttastarfi.

Að lokum skorar stjórn Suðra á alla sem geta mögulega aðstoðað að hafa samband.

Reikningsnúmer: 0586-14-001773
Kennitala: 560486-1469

Nýjar fréttir