Fagna ákvörðun Sveitarfélagsins Árborgar um að lækka byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og fella niður gjöld af atvinnulóðum
Meistarafélag Suðurlands og Félag rafverktaka á Suðurlandi fagna ákvörðun Sveitarfélagsins Árborgar um að lækka byggingarréttargjöld af íbúðarlóðum og fella niður gjöld af atvinnulóðum. Aðgerðirnar eru mikilvægt skref í þá átt að bæta rekstrarumhverfi byggingariðnaðarins, greiða fyrir aukinni uppbyggingu og skapa betri skilyrði fyrir fjárfestingu í sveitarfélaginu.
Jákvætt skref fyrir uppbyggingu
Mikil þörf er á nýju húsnæði og því skiptir máli að sveitarfélög leiti leiða til að draga úr kostnaði við uppbyggingu. Lækkun byggingarréttargjalda af íbúðarlóðum um 30–40%, eftir byggðakjörnum, er jákvætt framlag í þá átt. Þá er sérstaklega ánægjulegt að gjöld af atvinnulóðum verði felld niður, enda getur sú breyting aukið hvata fyrirtækja til fjárfestinga og atvinnuuppbyggingar í Árborg.
Formenn félaganna telja mikilvægt að gjaldtaka sveitarfélaga vegna uppbyggingar sé hófleg, gagnsæ og fyrirsjáanleg. Há gjöld við upphaf framkvæmda geta dregið úr uppbyggingu, aukið fjármagnskostnað og að lokum skilað sér í hærra verði húsnæðis og atvinnuhúsnæðis.
Ákvörðun Árborgar er því mikilvægt fordæmi um hvernig sveitarfélög geta með markvissum breytingum á gjaldtöku skapað aukið svigrúm til framkvæmda, fjárfestinga og atvinnusköpunar. Félögin hvetja önnur sveitarfélög til að skoða með sambærilegum hætti hvernig draga megi úr álögum og hindrunum sem standa í vegi fyrir uppbyggingu.
Stjórnvöld vinni í sömu átt
Jafnframt skora formenn félaganna á stjórnvöld að fella ekki niður endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna á verkstað. Mikilvægt er að aðgerðir ríkis og sveitarfélaga vinni í sömu átt og styðji við framkvæmdir, viðhald og uppbyggingu fremur en að auka kostnað.
Öflugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi byggingar- og mannvirkjageirans er forsenda áframhaldandi uppbyggingar. Aðgerðir Árborgar eru jákvætt skref í þá átt og félögin hvetja bæði ríki og sveitarfélög til að leggja áherslu á að draga úr álögum og bæta skilyrði fyrirtækja og heimila til framkvæmda.
Valdimar Bjarnason, formaður Meistarafélags Suðurland
Magnús Gíslason, formaður Félags rafverktaka á Suðurlandi



