Carglass sérhæfir sig í viðgerðum og skiptum á bílrúðum. Fyrirtækið leggur áherslu á að gera við stjörnur og sprungur í framrúðu frekar en að skipta um alla rúðuna, sem er ódýrari og hraðari lausn.

Carglass hóf starfsemi á Íslandi fyrr á árinu. Kjartan Þór Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Carglass á Íslandi, segir opnunina á Selfossi marka mikilvægt skref í uppbyggingu fyrirtækisins hér á landi.
„Með útibúinu á Selfossi er Carglass komið með þjónustuaðila á Suðurlandi, sem þýðir að íbúar svæðisins hafa nú greiðan aðgang að fagmannlegri þjónustu fyrir viðgerð eða skipti á bílrúðu,“ segir Kjartan.
Þjónustan sem íbúar á Suðurlandi fá nú aðgang að er meðal annars viðgerð á stjörnu í framrúðu sem tekur aðeins 30 mínútur og er þeim að kostnaðarlausu í gegnum tryggingarfélög. Að auki býður Carglass upp á rúðuskipti og kvörðun á myndavélum fyrir bíla með nýjustu tækni og öryggisbúnaði. Carglass þjónustar allar tegundir og árgerðir bifreiða.
„Þar sem hægt er að bóka tíma á netinu og sækja bílinn samdægurs er þetta þægilegur og skilvirkur valkostur fyrir íbúa á Suðurlandi,“ segir Kjartan.
Kjartan segir viðtökurnar við nýju útibúi hafa verið mjög jákvæðar og að eftirspurn hafi verið góð og meiri en búist var við. Hann segir viðskiptavini hafa verið virkilega ánægða með þjónustuna.
„Við stefnum á að opna fleiri útibú í náinni framtíð til að vera sem næst viðskiptavinum okkar og veita bestu mögulegu þjónustu.“

