11.7 C
Selfoss

Bátar og býli – Sýning í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka

Vinsælast

Sýningin Bátar og býli var opnuð í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka á föstudaginn var.

Á sýningunni eru fagurlega smíðuð líkön af bátum og skipum ásamt áhugaverðum líkönum af byggingum úr Árnessýslu. Þar má sjá þrjú skipslíkön eftir hinn þekkta skipasmið Stein Guðmundsson í Steinsbæ á Eyrarbakka, líkan af bátnum Vonfrá Þorlákshöfn eftir Vilhjálm Hinrik Ívarsson og fleiri báta eftir minna þekkta hagleiksmenn.

Fjölbreytt húsalíkön eru á sýningunni eins og stórt líkan af Stöng í Þjórsárdal smíðað af listamanninum Magnúsi Pálssyni, smágert líkan af Áslækjarrjómabúi í Hrunamannahreppi eftir Ingimund Einarsson og einstak líkan af Birtingaholti gert af Sigurfinni Sigurðssyni löngu eftir að sjálfur bærinn brann árið 1951.

Sýningin er lítil glufa inn í heim módelsmíða þar sem handverk hagleiksfólks og fagmanna kemur saman og birtir okkur smækkaða mynd af manngerðri veröld.

Safnið er opið alla daga í sumar.  Aðgangseyrir í safnið er ársmiði.

Ljósmynd frá sýningaropnuninni.

Nýjar fréttir