12.1 C
Selfoss

Fyrsta fimmtudagskvöld sumarsins á Þingvöllum

Vinsælast

Næstkomandi fimmtudag klukkan 20 fer fram fyrsta fimmtudagskvöld sumarsins á Þingvöllum þar sem boðið verður upp á glæsilega dagskrá undir yfirskriftinni „Þingvallahátíð! Jón Sigurðsson forseti og frelsishetja“.

Kvöldið verður leitt af Guðna Ágústssyni, fyrrverandi alþingismanni og ráðherra, sem jafnframt setur hátíðina og flytur lokaorð að dagskrá lokinni.

Jón Sigurðsson fær góð eftirmæli á fjörlegri dagskrá og verða meðal annars tónlistaratriði, ljóðalestur og ávörp þekktra gestum.

Karlakór Selfoss kemur fram og flytur söngatriði, Svandís Dóra Einarsdóttir flytur ljóð og Lilja Dögg Alfreðsdóttir minnist Jóns Sigurðssonar forseta.

Þá mun Gunnlaugur Bjarnason óperusöngvari flytja ljóð Hjálmars Jónssonar, Land og þjóð, áður en Karlakór Selfoss stígur aftur á svið. Að dagskrá lokinni flytur Guðni Ágústsson lokaorð.

Nýjar fréttir