6.7 C
Selfoss

Á yfir 1000 borðspil í einkasafni – Spilavin á Hótel Hvolsvelli

Vinsælast

Spilaviðburðurinn Spilavin á Hótel Hvolsvelli fer nú fram dagana 23.-26. apríl. Þetta markar fimm ára afmæli hátíðarinnar og er búið að framlengja hátíðina frá þremur dögum yfir í fjóra.

Hilmar Kári Hallbjörnsson er stofnandi fyrirtækisins Borðspilavinir og forsvari fyrir viðburðinn Spilavin á Hótel Hvolsvelli.

Hvað er Spilavin?

Spilavin (enska orðið yfir boardgame retreat) gengur út á að fólk alls staðar að sem hefur áhuga á borðspilum hittist til þess að spila saman alla helgina frá fimmtudegi til sunnudags.

Hugmyndina að spilaviðburði átti Hilmar ásamt nokkrum félögum sínum fyrir nokkrum árum. „Við vorum nokkrir vinir sem töluðum saman um að það væri nú gaman ef við gætum öll farið saman og spilað heila helgi einhvers staðar,“ segir hann.

Hilmar tók þá á skarið og hefur haldið utan um spilaviðburðinn frá upphafi. Í samstarfi við Hótel Hvolsvöll hefur viðburðurinn verið haldinn þar eina helgi ár hvert síðastliðin fimm ár. Síðastliðin fjögur ár hefur hátíðin verið haldin frá föstudegi til sunnudags, en hefur nú þróast yfir í stærri viðburð. Í ár hefst hún á sumardaginn fyrsta og stendur yfir í fjóra daga, frá fimmtudegi til sunnudags. Hilmar segir framlenginguna koma til með að vera næstkomandi ár.

Stærsta borðspilasafn á Íslandi

Hilmar sjálfur uppgötvaði áhuga sinn á borðspilum árið 2018 og hefur síðan þá verið að safna borðspilum. Í dag er Hilmar kominn með yfir 1000 borðspil í safnið sem gerir hann líklega eiganda að stærsta safni í einkaeigu af borðspilum á Íslandi.

Spilasafnið frá hátíðinni í fyrra en en þá jókst spilasafnið úr 100 spilum í 350. Mynd: Aðsend.

Hilmar mætir persónulega með hátt í 400 borðspil af 1000 borðspilum sem hann á sjálfur sem gestir á staðnum geta gengið í. Spilunum stillir Hilmar upp í hillu og fólk hefur aðgang að borðspilasafninu og getur þar af leiðandi valið sér það spil sem það vill. „Það eru allir velkomnir að koma, það er ekki uppselt enn þá þannig að allir geta komið.“

Lifandi sýning á laugardagskvöld

Aðsókn að hátíðinni hefur aukist ár frá ári og segir Hilmar þau vera komin með 80% nýtingu á öllu hótelinu.
„Það er ekki langt í að viðburðurinn fari að verða uppseldur. Við erum með rétt tæplega 100 einstaklinga skráða og nýtum því í kringum 49 herbergi af 66 herbergjum hótelsins.“

Þótt meirihluti gesta séu Íslendingar hefur viðburðurinn einnig náð að laða að erlenda þátttakendur sem koma bæði á eigin forsendum eða með boði.

Í ár verða sérstakir gestir á hátíðinni stjórnendur vinsæla borðspilahlaðvarpsins This Game Is Broken, sem koma frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Bretlandi. Þau munu halda lifandi sýningu á laugardagskvöldi, þar sem grín og spil fléttast saman fyrir framan áhorfendur. „Þetta er svolítið eins og að fá Rolling Stones til að spila á Bræðslunni fyrir okkur í borðspilaheiminum,“ segir Hilmar.

Skemmtilegasta hópefli sem til er

Hilmar segir hátíðina vera eitt skemmtilegasta hópefli sem til er.
„Fólk stundum áttar sig ekki á því hvað þetta er í raun og veru magnað fyrr en það kemur á staðinn. Þetta er bara eitthvert skemmtilegasta hópefli sem til er,“ segir hann.
„Á hverju ári koma 40–50 vinir mínir. Þetta er fólk sem ég kalla bara vini mína sem eru að koma og spila. Þetta er bara fólk sem hittist til að spila en er svo kannski ekkert endilega alltaf að hittast við önnur tækifæri,“ bætir hann við.

Mynd tekin frá Spilavin. Mynd: Aðsend.

Hilmar segir fólk sitja frá morgni til kvölds og í samstarfi við hótelið er boðið upp á hádegis- og kvöldmat. „Eftir þetta samstarf fer fólk ekkert út af hótelinu alla helgina. Það kannski tjékkar inn á hádegi á fimmtudegi og svo fer það bara seinnipartinn á sunnudegi.“

Hilmar nefnir að hátíðin sé frábær leið til að aftengja sig og losna frá símanum.
„Þetta er bara svo mikil upplifun og þetta er svo skemmtilegt. Þetta er svo mikil samvera. Það er enginn með nefið ofan í neinum skjá, það eru allir bara að eiga í samskiptum og spila. Spilin eru alls konar, allt frá litlum stokkaspilum og upp í spil sem taka marga klukkutíma að spila. Einmitt mjög góð leið til að losa sig frá símanum.”

Á hátíðinni eru allir velkomnir og eru starfsmenn á staðnum sem eru tilbúnir að taka á móti gestum.
„Ef þú hefur aldrei spilað áður og þú kemur einn þá eru starfsmenn sem taka þér opnum örmum, kynna þig strax fyrir fólki, kenna þér og koma þér í spilið.“

Engin stefna á að hætta

Hilmar segir enga stefnu vera á að hætta næstkomandi ár og hefur hann strax hafið að undirbúa hátíðina á næsta ári. Komin er dagskrá fyrir 2027 og hefst þá Spilavin sumardaginn fyrsta þann 22.-25. apríl. Samstarfið við Hótel Hvolsvöll segir Hilmar frábært og að enginn áhugi sé á að breyta því.

„Og við erum strax farin að hafa samband og fá erlenda gesti, svo já, ég er strax byrjaður að plana framtíðina. Við stefnum að því að selja upp hótelið,“ segir hann að lokum

Nánari upplýsingar um hátíðina má finna inni á spilavin.is.

SEG

Nýjar fréttir