Háskólafélag Suðurlands og Samband sunnlenskra sveitarfélaga leggja nú fyrir íbúakönnun sem ætlað er að greina þarfir og kortleggja almenningssamgöngur í Árnessýslu.
Könnunin á að draga fram mismunandi þarfir íbúa með tilliti til aldurshópa, búsetu og þjónustusókn og skoða hvort hægt sé að samræma almenningssamgöngur með öðrum áætlunarakstri s.s sérakstri.
Þátttaka íbúa er gríðarlega mikilvæg og hvatt er alla íbúa frá 16 ára aldri að taka þátt. Könnunin tekur um 5 – 8 mínútur og er órekjanleg.
Svara könnun:Íbúakönnun um almenningssamgöngur í Árnessýslu 2026.




