Föstudaginn 23. október breytist Selfosskirkja í spennandi hrekkjavökuheim þar sem draugar, dulúð og drungaleg stemning taka völdin.
Æskulýðsfélag kirkjunnar stendur fyrir skemmtuninni og allur ágóði rennur í ferðasjóð krakkanna, sem eru að fara á æskulýðsmót í Vatnaskógi í nóvember.
Dagskráin er sniðin að mismunandi aldurshópum.
Fyrst verður hrekkjavökuskemmtun fyrir börn í 1.-4. bekk frá kl. 16:00 til 17:30, þar sem boðið verður upp á draugahús, draugasögu, heimsókn til spákonu og ýmsa skemmtilega afþreyingu. Á staðnum verður einnig hryllilega góð sjoppa fyrir svanga og sælgætisglaða gesti.
Þá tekur við hrekkjavökukvöldvaka fyrir 5.-7. bekk frá kl. 18:00 til 19:30, þar sem sama dagskrá verður í boði en sniðin að eldri krökkum. Draugahúsið verður dimmara, draugasagan meira spennandi og stemningin öllu dularfyllri. Gestir geta einnig heimsótt spákonu og kíkt við í hryllilega góðri sjoppu á meðan þeir njóta ekta hrekkjavökustemningar.
Frá kl. 20:00 til 21:00 verður almenn opnun, þar sem gestir geta heimsótt hið vinsæla draugahús og kíkt til spákonu, ef þeir þora.
Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og verður sjoppa á staðnum, athugið að við erum ekki með posa.
Þau sem mæta í búningi fá jafnframt lítinn glaðning með sér heim.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir krakkana að koma saman, skemmta sér og njóta skemmtilegrar og örlítið dularfullrar stemningar í haustfríinu.

