5.8 C
Selfoss

Hrunamannahreppur sveitarfélag ársins 2026

Vinsælast

Hrunamannahreppur hefur verið valinn sveitarfélag ársins 2026. Viðurkenning var veitt við hátíðlega athöfn á Hótel Selfossi til þess sveitarfélags sem kom best úr könnuninni. Sveitarfélag ársins er samstarfsverkefni tíu stéttarfélaga bæjarstarfsmanna innan BSRB í samvinnu við Gallup. Könnunin, sem nú var framkvæmd í fimmta sinn, sýnir að starfsfólk sveitarfélaga er almennt ánægt með starfsumhverfi sitt og að ánægja með launakjör, sveigjanleika og jafnrétti hefur aukist undanfarin fimm ár.

Niðurstöður könnunarinnar voru bornar saman milli þátttakenda sveitarfélaga og þeim fjórum sveitarfélögum sem komu best út úr könnuninni var veitt viðurkenning. Í fyrsta sæti í ár var Hrunamannahreppur. Önnur sveitarfélög sem hlutu viðurkenningu í ár eru Grímsnes- og Grafningshreppur í öðru sæti, Grundarfjarðarbær í þriðja og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í fjórða sæti.

Sveitarfélögin á Suðurlandi sem hlutu viðurkenningu hafa verið á meðal þeirra efstu í könnuninni undanfarin ár. Hrunamannahreppur hefur áður verið í hópi efstu sveitarfélaga og Grímsnes- og Grafningshreppur hlaut fyrsta sætið þegar könnunin var fyrst framkvæmd árið 2022.

Nýjar fréttir