5.4 C
Selfoss

Rjómalagað kjúklingapasta með beikoni

Vinsælast

Syndum Laugarveginn

Huppa 100 ára

Matgæðingur vikunnar er Daníel Arnar Víðisson.

Jæja, þá er komið að mér að sýna hvað í mér býr í eldhúsinu og ég tek þessari áskorun af fullri alvöru… eða svona næstum því 😊

Á matseðlinum er réttur sem klikkar sjaldan: Rjómalagað kjúklingapasta með beikoni.

Þetta er matur sem er nógu einfaldur til að maður þurfi ekki kokkahúfu, en góður til að maður geti látið eins og maður sé atvinnukokkur 😊

Rjómalagað kjúklingapasta með beikoni

Hráefni (fyrir 4)

  • 500 g kjúklingabringur
  • 1 pakki beikon
  • 400 g pasta
  •  1 peli matreiðslurjómi (250 ml)
  • Rjómaostur (um 200 g)
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 kjúklingateningur
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • Salt og pipar
  • Rifinn parmesanostur eftir smekk

Aðferð

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum
  2. Skerið beikon niður og steikið þar til það verður stökkt. Takið það svo af pönnunni.
  3. Skerið kjúklinginn í bita, kryddið með paprikukryddi, salti og pipar og steikið þar til hann er fulleldaður,
  4. Bætið söxuðum hvítlauk út á pönnuna og steikið í smástund.
  5. Hellið rjómanum út, bætið rjómaostinum og kjúklingateningnum saman við og hrærið þar til sósan verður mjúk og rjómalöguð.
  6. Blandið pastanu og beikoninu saman við sósuna.
  7. Stráið svo parmesanosti yfir og njótið.

Meðlæti

Berið fram með fersku salati og hvítlauksbrauði.

Kokkarráð dagsins: Ef þetta bragðast ekki nógu vel, bætið þá meiri osti við 😉


Nú er komið að næsta fórnarlambi að spreyta sig og skora ég því hér á hann Eið Helga Héðinsson að taka við keflinu og vera næsti matgæðingur, því ég veit að honum finnst gaman að borða góðan mat.

Engin pressa samt… en það er búið að setja standardinn! 😉

Verði ykkur að góðu.

Nýjar fréttir