Sigurður Emil Pálsson frá Hrunamannahreppi bar sigur úr býtum annað árið í röð á Blítt og Létt, söngvakeppni Menntaskólans að Laugarvatni, sem fór fram í gærkvöldi. Sigurður sigraði með laginu Stimpla mig út með Valdimar en Sigurður vann einnig í fyrra með laginu Sumar konur eftir Bubba Morthens. Hann hefur því tryggt sér sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna næsta vor fyrir hönd Menntaskólans að Laugarvatni.
Alls tóku tólf glæsileg atriði þátt í keppninni og var íþróttasalur Laugarvatns þétt setinn af áhorfendum. Í öðru sæti varð Sara Nadía Gunnarsdóttir með lagið Ég sé þig með Jóhönnu Guðrúnu. Í þriðja sæti var svo Bergur Tjörvi Bjarnason með lagið Lukkutroll með Ljótu Hálfvitunum. Eru þau Sigurður, Sara og Bergur öll úr Hrunamannahreppi.
Verðlaun voru veitt fyrir skemmtilegasta atriðið og voru það þeir Gísli Guðnason, Eiríkur Janusson og Guðjón Ingi Guðlaugsson, eða Bakkabræður eins og þeir kalla sig, sem sigruðu þann titil en þeir tóku lagið OMG með Flona, Birni og Joey Christ.
Líkt og undanfarin ár sá hljómsveitin Stones Stones um undirleik allra atriða. Kynnar kvöldsins voru nýstúdentin þau Hjördís Katla Jónasdóttir og Ingvar Jökull Sölvason. Í dómnefnd sátu Pálmi Gunnarsson, Elva Rún Pétursdóttir og Unnur Malín Sigurðardóttir.

Blítt og Létt er stærsti viðburður á vegum Stjórn Mímis, nemendafélags skólans, og með því fylgir kynningardagur ML. Á kynningardegi ML fá nemendur á elsta stigi grunnskóla um allt Suðurland boð um að koma í heimsókn og kynna sér nám skólans, félagslíf og heimavistir. Kynningardeginum lýkur með söngvakeppni Blítt og Létt sem haldin er árlega í íþróttahúsinu á Laugarvatni að mikilli vinsæld.


