Opið hús var í gömlu kartöflugeymslunni í Jórutúni á Selfossi um helgina í tilefni af menningamánuði í Árborg. Ætla má að um og yfir 200 manns hafi lagt leið sína í húsið, sem er braggi og hafði frá árinu 1952 verið nýttur sem kartöflugeymsla yfir vetrartímann fyrir íbúa á Selfossi. Bragginn þjónaði hlutiverki sínu í um hálfa öld eða þegar fólk hætti að nýta braggann undir geymslu.
Fyrir um tveimur árum fékk hópur fólks áhuga á því að varðveita gömlu kartöflugeymsluna og leitaði til sveitarstjórnar Árborgar. Undirtektir þar voru afspyrnu góðar og bretti hópurinn upp ermar. Byko, Festi, Elko og fjöldi fyrirtækja hefur stutt dyggilega við verkefnið ásamt sveitarfélaginu. Þótt verkefninu er ekki lokið er hægt að taka inn gesti í húsið.
Gestir sem kíktu við um helgina deildu góðum minningum úr geymslunni og gátu skoðað lista yfir þær fjölskyldur sem geymdu kartöflur þar fyrstu árin. Þau sem vildu gátu bætt við nöfnum á listann.
En gestirnir fengu líka nasasjón af þeim möguleikum sem bragginn býr yfir. Þar er hægt að hafa sýningar, litla tónleika og fjölbreytta menningartengda viðburði af ýmsum toga.
Forsvarsfólk Grasrótarfélagsins Langhúsið er glatt í hjarta yfir áhuga fólks á gömlu kartöflugeymslunni. Verkefninu er hins vegar hvergi nærri lokið.
Þau sem vilja leggja verkefninu lið geta styrkt það með fjárframlagi á eftirfarandi reikning:
Grasrótarfélagið Langhúsið
560625-2510
Banki. 0586-26-004295
Forsvarsfólk Grasrótarfélagsins kann að meta allan stuðning við verkefnið!



