8.4 C
Selfoss

Syndum Laugarveginn

Vinsælast

Huppa 100 ára

Ritzkex-kjötbollur

Hellingar, unglingadeild Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, stendur fyrir áheitasundi þann 30.–31. október 2026. Áheitasundið fer fram í sundlauginni á Hellu og verður synt í 12 klukkustundir eða frá kl. 19:00-07:00. 

Unglingadeildin heldur vikulega fundi með fræðslu um starf björgunarsveita, þar sem m.a. er kennd skyndihjálp og unnið með hvetjandi hópefli. 

Krakkarnir, sem eru á aldrinum 13–17 ára, eru virkilega spenntir fyrir sundinu og ætla öll að gera sitt besta til að ná markmiðinu. 

Markmiðið er að safna fyrir flotgöllum í unglingastærð sem nýtast til æfinga fyrir ungmennin og einnig fyrir félagsmenn við björgun í vatni. „Okkur finnst skemmtilegast að æfa í ánni björgun í vatni og langar okkur í flotgalla sem passa á okkur til þess,“ segja krakkarnir kampakát.

Stefnan er að synda lengd Laugarvegarins eða 55 kílómetra á 12 klukkustundum. Krakkarnir eru mjög jákvæðir fyrir því að þau nái þessu markmiði og eru mjög spenntir fyrir því. 

„Gestum er velkomið að koma að styðja okkur og synda með okkur á opnunartíma sundlaugarinnar, á milli kl. 19:00 og 21:00!” segja krakkarnir spennt. 

Allar upplýsingar um sundið sem og styrktarupplýsingar eru inni á Facebook-síðu Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Ef fólk vill fylgjast með sundinu verður sýnt frá því á Instagram-síðu deildarinnar @unglingadeildin_hellingar.

Nýjar fréttir