4.7 C
Selfoss

Huppa 100 ára

Vinsælast

Þriðjudaginn 3. nóvember n.k. hefði ættmóðir íslenska kúastofnsins, Huppa frá Kluftum, orðið 100 ára ef hún hefði lifað. Í tilefni af þessum tímamótum standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði í félagsheimilinu á Flúðum. Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en þá tekur við veglegt kaffisamsæti til heiðurs afmælisbarninu. Í hádeginu mun Auðhumla svf. bjóða upp á veitingar sem saman standa af mjólkurafurðum afkomenda Huppu en líklega er hægt að rekja ættir nánast allra nautgripa á landinu til þessa merkisgrips.

Dagskrá málþingsins verður einkum helguð Huppu sjálfri en þar verður m.a. fjallað um ætt og uppruna Huppu, áhrif ehnnar á íslenska nautgriparækt, útbreiðslu afkomenda og erfðavísa hennar um land allt, nafngiftir og liti nautgripa og erfðahlutdeild Huppu í íslenska kúastofninum.

Huppa er nefnilega sérstakur gripur, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur einnig á heimsvísu. Ólíklegt er að nokkur kýr í heiminum eigi jafn stóra hlutdeild í erfðamengi nokkurs kúakyns í heiminum eins og hlutur Huppu í íslenska kúastofninum er. Reynt verður að varpa ljósi á ástæður þess á málþinginu. Huppa skipar líka sérstakan sess í augum áhugamanna um nautgriparækt, íslenskra kúabænda og ekki síst Hrunamanna. Sem dæmi um hve miklar mætur menn hafa á henni og hennar orðspori er salur í félagsheimilinu á Flúðum nefndur Huppusalur og gagnagrunnur íslenskrar nautgriparæktar ber heiti Huppu.

Málþingið og afmælisfagnaðurinn er öllum opinn og áhugamenn um nautgripi og nautgriparækt sérstaklega velkomnir og ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara. Þá er þetta fullkomið tilefni til að hittast og gera sér glaðan dag um leið og afmælisbarnið verður heiðrað.

Nýjar fréttir