Listasafn Árnesinga heldur upp á pólska menningardaga í þriðja sinn í ár og að þessu sinni vinna þau með pólska galleríinu Arsenal. Martyna Hopsa er verkefnastjóri og hugmyndasmiður daganna.
Verkefnið hefur vaxið og eflst með hverju árinu og er orðið mikilvægur þáttur í samfélags- og menningarstarfi safnsins. Í ár nær dagskráin yfir allan nóvembermánuð og teygir sig jafnframt inn í október og desember.
Meginmarkmið verkefnisins er að skapa lifandi vettvang þar sem pólsk og íslensk menning mætast, efla tengsl milli íbúa af ólíkum uppruna og stuðla að virkri þátttöku í menningarlífi samfélagsins. Pólverjar eru fjölmennur hópur á Íslandi og hafa lagt mikilvægan skerf til íslensks samfélags. Með POL IS ART III vill Listasafn Árnesinga auka sýnileika pólskrar menningar og undirstrika mikilvægi þess að menningarstofnanir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins og séu opnar öllum.
Dagskráin er fjölbreytt og ætluð öllum aldurshópum. Boðið verður upp á myndlistarsýningar, listamannaspjall, og skapandi smiðjur, meðal annars þrykk-, textíl- og vatnslitasmiðjur, rólegar myndlistarsmiðjur og núvitundarsmiðjur. Sérstök áhersla er lögð á þátttöku barna og fjölskyldna og verða smiðjur meðal annars haldnar á íslensku, pólsku og ensku til að tryggja að tungumál verði ekki hindrun fyrir þátttöku. Tónlist og pólsk matarmenning verða einnig hluti af dagskránni. Listamannatvíeykið Lukas Bury og Weronika Balcerak, sem sýnir í sal 2 í safninu, tekur þátt með listamannaspjalli.
Monika Szewczyk, sýningarstjóri hjá pólska galleríinu Galeria Arsenał hefur sett saman prógram sem verður kynnt í vídeóhorni safnsins.
Pólska sendiráðið á Íslandi hefur jafnframt verið mikilvægur samstarfsaðili menningardaganna.



