4.5 C
Selfoss

Töfrar að skrifa ljóð

Vinsælast

Rithöfundurinn Ingibjörg Birgisdóttir hefur gefið út sína fjórðu barnabók, Litaævintýri Siggu og Dóra. Næstkomandi laugardag verður útgáfuhóf á bókasafninu á Selfossi.

Hingað til hafa bækur Ingibjargar alltaf innihaldið stök ljóð en Litaævintýri Siggu og Dóra er fyrsta barnabók Ingibjargar með söguþræði. Bókin er í ljóðaformi, bundnu máli, með stuðlum, höfuðstöfum og endarími, líkt og hennar fyrri bækur.

Hver kafli byggir á mismunandi lit

Hver kafli er litaskiptur, táknar í rauninni einn lit og notar Ingibjörg litina til þess að ramma inn söguna. Litirnir hafa jafnframt ákveðna merkingu og tengjast stemningu og tilfinningum. Til dæmis er brúnn jarðtenging, grænn er öfundsýki, gulur er bjartur morgun og sólin, rauður er reiði o.s.frv.

Bókin er kaflaskipt eftir litum. Hver kafli er tvær opnur. Mynd: Dagskráin/SEG.

„Bókin er um systkinin Siggu og Dóra. Dóri vaknar um miðja nótt í gráum, þegar allt er grátt og drungalegt. Hann vill ekki sofa lengur og vekur systur sína og þau stelast út að leika. Þau lenda í alls konar yfir daginn. Bókin spannar í rauninni heilan dag og endar í appelsínugulu sólsetrinu,“ segir Ingibjörg.

Bókin er fallega myndskreytt eftir Nataliu Yacuzzi en hún hefur myndskreytt allar bækurnar eftir Ingibjörgu. „Ég er svo heppin að vera með góðan teiknara. Myndirnar eru mjög mikilvægar því þær laða börnin að bókinni og svo fylgir textinn á eftir.“

Bókin er fallega myndskreytt eftir Nataliu Yacuzzi. Mynd: Dagskráin/SEG.

Þriðja bókin á þremur árum

Ingibjörg, sem er búsett á Selfossi, hefur verið að semja ljóð frá því hún var í Kennaraháskóla Íslands. Þar kynntist hún ljóðabókum Þórarins Eldjárns og varð alveg heilluð af þeim.

„Þá skráði ég mig í svona valáfanga, ljóðaáfanga hjá honum Ragnari Inga Aðalsteinssyni, og þá bara komst ég að því að ég gæti skrifað ljóð.“ Ingibjörg dúxaði í áfanganum.

Ingibjörg samdi sína fyrstu bók árið 2007 en næsta bók kom ekki út fyrr en 17 árum seinna, árið 2024. Í fyrra gaf Ingibjörg út þriðju bókina, Dásamleg dýr, sem naut mikillar vinsældar. Litaævintýri Siggu og Dóra er því þriðja bók Ingibjargar á síðustu þremur árum.

Krefjandi en skemmtilegt ferli

Ingibjörg segir ýmsar áskoranir fylgja því að skrifa ljóðabók en að henni finnist það alltaf jafn gaman.

„Mér finnst að þegar maður nær að setja orðin rétt saman, þannig að þau passi inn í formið, þá gerast einhvern veginn svona töfrar. Þetta getur oft verið mjög krefjandi. Ég veit kannski hvað mig langar að skrifa um áður en ljóðformið er komið, en samt gerist oft lítið fyrr en ég finn rétta formið. Þá fara hlutirnir allt í einu að gerast..“

Fyrir hvaða aldurshóp er Litaævintýri Siggu og Dóra?
„Ég myndi segja að bókin sé fyrir leikskólabörn og alveg upp í fyrstu bekki í grunnskóla. Svo held ég bara að fullorðnir geti líka haft gaman af bókinni, það er alltaf gaman að lesa í bundnu máli.“

Bókin er fallega myndskreytt eftir Nataliu Yacuzzi. Mynd: Dagskráin/SEG.

Útgáfuhóf á Bókasafni Árborgar

Í tilefni af útgáfu Litaævintýri Siggu og Dóra verður efnt til útgáfuhófs á Bókasafni Árborgar á Selfossi, laugardaginn 5. september klukkan 11:00. Boðið verður upp á léttar veitingar, kleinur og pönnukökur að sveitasið og einnig verður hægt að ná sér í áritað eintak á kynningarafslætti. Einnig verður föndurhorn þar sem krakkar geta litað og teiknað að vild. Allir eru velkomnir og hvattir til að mæta og taka þátt.

Litaævintýri Siggu og Dóra fæst hjá höfundi á skjalda.is og í helstu verslunum Pennans. Einnig fæst hún í Bókakaffinu á Selfossi og hjá Forlaginu.

„Ég er afskaplega stolt af þessari bók og ég bind miklar vonir við hana. Ég vona bara að hún fari sem víðast og ég er spennt að heyra hvað krökkunum finnst,“ segir Ingibjörg í lokin.

Nýjar fréttir