Fjár- og stóðréttir eru að byrja um land allt um þessar mundir. Það er ekki skortur á þeim á Suðurlandi. Hér að neðan má sjá lista yfir tímasetningar á auglýstum réttum sem framundan eru í landshlutanum.
Kringlumýrarrétt á Lyngdalsheiði, Árnessýslu — 5. sept.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árnessýslu — 7. sept.
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árnessýslu — 11. sept. kl. 10.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árnessýslu — 11. sept.
Grafarrétt Skaftártungu, Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu — 12. sept.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árnessýslu — 12. sept.
Skaftárrétt, Hunkubökkum, Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu — 12. sept.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árnessýslu — 12. sept.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árnessýslu — 12. sept. kl. 13.
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árnessýslu — 13. sept. kl. 17.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árnessýslu — 13. sept.
Ölfusrétt í Reykjadal, Árnessýslu — 13. sept. kl. 14.
Grafningsrétt í Grafningi, Árnessýslu — 14. sept. kl. 9:45.
Landréttir við Áfangagil, Rangárvallasýslu — 17. sept. kl. 12.
Selvogsrétt í Selvogi, Árnessýslu — Smalað er í Selvogi 19. sept., réttað 20. sept. kl. 09.
Reyðarvatnsréttir, Rangárvallasýslu — 19. sept. kl. 13.
Smalað er í Ölfusi 12. og 13. september og 26. og 27. september. Austurleit smalar Ingólfsfjall 19. september.
Samkvæmt fjallskilasamþykkt fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr. 77 eru seinni leitir tveimur vikum síðar.
Hafa skal í huga að tímasetningar leita og rétta geta breyst, einkum vegna veðurs.
Heimildir: Bændablaðið



