Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli var haldin í tuttugasta skipti dagana 26. til 30. ágúst með glæsibrag. Hátíðin hefur í tvo áratugi verið fastur liður á Hvolsvelli og líkt og undanfarin ár var frítt inn á alla viðburði.
„Hátíðin tókst alveg frábærlega vel og aldrei hefur verið eins mikið af fólki. Veðrið var fullkomið,“ segir Sigurmundur Páll Jónsson, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra, í samtali við Dagskrána.
Mikið var um að vera alla helgina og höfðaði dagskráin til gesta á öllum aldri. Boðið var upp á fjölbreytta tónlist og afþreyingu, auk þess sem börnin gátu notið tívolís, hoppukastala og fjölskylduskemmtunar á miðbæjartúninu. Mikil litagleði var í bænum þegar íbúar skreyttu hverfin sín í sínum sérstöku hverfislitum.
Súpuröltið sem fór fram á föstudag hefur fest sig í sessi sem einn af helstu hápunktum hátíðarinnar. Sú hefð að íbúar opni heimili sín og bjóði gestum upp á heimagerða kjötsúpu.
Laugardagskvöldið var svo annar af stóru hápunktum hátíðarinnar. Brekkusöngur undir stjórn Guðrúnar Árnýjar fór fram í stóra tjaldinu og að honum loknum lýsti flugeldasýning upp himininn yfir Hvolsvelli. Kvöldinu lauk síðan með Kjötsúpuballi þar sem Stuðlabandið steig á svið ásamt sérstökum gestum, þeim Friðriki Dór og Páli Óskari.
Meðfylgjandi myndir: Sigurmundur Páll Jónsson.



