Bæjarhátíðin Hamingjan við hafið fór fram í Þorlákshöfn dagana 4.–9. ágúst og tókst vel. Góð þátttaka íbúa og gesta skapaði einstaka stemningu og frábæra fjölskylduhátíð.
Fjölbreytt dagskrá var í boði meðan á hátíðinni stóð með tónlist, skemmtun og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Veðrið setti nokkurn svip á dagskrána á fimmtudagskvöldinu þegar ákveðið var að færa tónleika, sem áttu upphaflega að fara fram í garðinum hjá Róberti og Guðlaugu, yfir í hátíðartjaldið í Skrúðgarðinum. Breytingin virtist ekki hafa áhrif á stemninguna, en góð mæting var á tónleikana.
Líf og fjör var í hátíðartjaldinu á föstudagskvöldinu þar sem gestir á öllum aldri nutu kvöldsins saman. Þá komu fram Herra Hnetusmjör, Emmsjé Gauti, Kristmundur Axel og Júlí Heiðar áður en Sveitamenn lokuðu kvöldinu með dansleik.
Fjölskyldudagskráin í Skrúðgarðinum á laugardeginum var einnig vel sótt. Þar skemmti Lalli töframaður yngstu gestunum, Lína Langsokkur söng og lék, Sirkus Íslands sýndi sirkuslistir og BMX Brós sýndu hjólatrix við góðar undirtektir áhorfenda.
Undirbúningur fyrir Hamingjuna við hafið að ári er þegar hafinn. Sveitarfélagið hvetur íbúa og aðra gesti til að senda inn hugmyndir og ábendingar um það sem vel tókst og það sem mætti gera enn betur við skipulagningu næstu hátíðar.

