15 C
Selfoss

Kvöldvakan snýr aftur á Rangárbakka – Töðugjöld hafin

Vinsælast

Töðugjöld verða haldin í Rangárþingi ytra dagana 11.–16. ágúst og verður fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa.

Ein helsta breytingin í ár er að hin hefðbundna kvöldvaka snýr aftur á Rangárbakka laugardaginn 15. ágúst. Gunni og Felix leiða kvöldið og á svið stíga meðal annars Herra Hnetusmjör, Bjartmar Guðlaugsson og KK. Guðrún Árný stýrir brekkusöng og kvöldinu lýkur með flugeldasýningu Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Að kvöldvöku lokinni verður dansleikur í Reiðhöllinni þar sem Sunnan 6 ásamt Jónsa í Svörtum fötum heldur uppi fjörinu.

Dagskráin hófst í gær með Töðugjaldagöngu Ferðafélags Rangæinga. Fimmtudaginn 13. ágúst verður svo opið hús á Skeiðvöllum og föstudaginn 14. ágúst fara Töðugjaldahlaupið og Þorpararölt fram.

Laugardagurinn 15. ágúst verður stærsti hátíðardagurinn með samfélagsmorgunverði, Töðugjaldamarkaði, tækjasýningu, listasmiðjum, knattspyrnuleik KFR og Álafoss og fjölbreyttri fjölskyldudagskrá. Þar verða meðal annars Gunni og Felix, Lína Langsokkur, hoppukastalar, hæfileikakeppni barna og gæludýrakeppni. Skráning í hæfileikakeppni barna og gæludýrakeppni fer fram með tölvupósti á helga@ry.is.

Hátíðinni lýkur sunnudaginn 16. ágúst með sýningu Leikhópsins Lottu og skapandi listasvæði Youth Art Studio.

Eiríkur Vilhelm Sigurðarson tekur nú þátt í sínum fyrstu Töðugjöldum sem sveitarstjóri Rangárþings ytra. „Töðugjöld eru fastur punktur sumarsins hjá okkur í Rangárþingi ytra og frábært tækifæri til að koma saman, njóta samverunnar og skapa góðar minningar. Samfélagið byggist ekki eingöngu á framkvæmdum og innviðum, heldur einnig á samveru, menningu og þeim hefðum sem tengja okkur saman,“ segir Eiríkur.

Íbúar og gestir eru hvattir til að taka þátt í hátíðarhöldunum og njóta fjölbreyttrar dagskrár um allt sveitarfélagið. Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á www.ry.is og á Facebook-síðunni Töðugjöld á Hellu.

Nýjar fréttir