11.7 C
Selfoss

Háskólafélag Suðurlands og Drift undirrita samstarfssamning um Kveikjuna Suðurland

Vinsælast

Háskólafélag Suðurlands og Drift EA á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning um Kveikjuna Suðurland, nýtt verkefni sem ætlað er að efla nýsköpun og þróun innan starfandi fyrirtækja á Suðurlandi. Verkefnið tengir saman rótgróin fyrirtæki, sprotafyrirtæki og fræðasamfélagið með það að markmiði að styðja við vöruþróun, auka samkeppnishæfni og skapa verðmæt tengslanet. Kveikjan Suðurland er eitt af áhersluverkefnum SASS.

Drift EA er nýsköpunar- og frumkvöðlasetur á Akureyri sem vinnur að því að efla nýsköpun, styðja við uppbyggingu fyrirtækja og skapa vettvang fyrir samstarf atvinnulífs, fjárfesta, frumkvöðla og fræðasamfélags. Drift EA var stofnað árið 2024 og hefur síðan þá byggt upp öflugt nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi og þróað aðferðir sem tengja saman atvinnulíf, frumkvöðla og fræðasamfélagið. Með Kveikjunni Suðurland er sú reynsla og þekking nú nýtt til að styðja við nýsköpun og verðmætasköpun hjá fyrirtækjum á Suðurlandi.  Kveikjan Suðurland byggir á aðferðafræði Ignite Nordic og snýst um að leysa raunverulegar áskoranir atvinnulífsins með því að virkja krafta frumkvöðla, nýsköpunarteyma og fræðasamfélagsins.

Markmið samstarfsins er að innleiða aðferðafræði Ignite Nordic á Suðurlandi til að styðja við nýsköpun, nýliðun og verðmætasköpun í atvinnulífi á Suðurlandi. Verkefnið felst í því að tengja raunverulegar áskoranir starfandi fyrirtækja við lausnir frumkvöðla og nýsköpunarteyma frá Íslandi, Noregi og Svíþjóð, auk nemenda úr íslensku fræðasamfélagi.

Þátttakendur í verkefninu fá sérsniðna ráðgjöf, aðgang að öflugu nýsköpunarumhverfi og tækifæri til að vinna að þróunarverkefnum sem geta haft bein áhrif á rekstur fyrirtækja. Hluti af kjarna samstarfsins er jafnframt að efla samtal og tengsl milli fyrirtækja á svæðinu, frumkvöðla og nemenda og para saman áskoranir fyrirtækja við ferskar hugmyndir og nýjar lausnir.

„Með Kveikjunni Suðurland er verið að opna nýjar leiðir fyrir fyrirtæki til að halda áfram að þróast, takast á við áskoranir með nýjum hætti og byggja upp sterkari tengsl við frumkvöðla og þekkingarsamfélagið. Það er afar ánægjulegt að sjá hversu vel fyrirtæki á Suðurlandi hafa tekið þessu verkefni,“ segir Ingveldur Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands.

„Á Suðurlandi er öflugt atvinnulíf og mikil gróska sem skapar kjöraðstæður fyrir nýsköpun. Með Kveikjunni Suðurland viljum við tengja saman fyrirtæki, frumkvöðla og fræðasamfélagið til að leysa raunverulegar áskoranir og skapa ný tækifæri til vaxtar og verðmætasköpunar. Við hlökkum til að sjá verkefnið vaxa í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands og fyrirtæki á svæðinu, “segir Sesselja Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA.

Mikilvægi verkefnisins fyrir Suðurland felst í því að byggja upp nýjan samstarfsvettvang þar sem fyrirtæki, frumkvöðlar og þekkingarsamfélagið vinna saman að þróun nýrra lausna. Verkefnið fellur jafnframt vel að áherslum í gildandi atvinnumálastefnu 2025–2029 fyrir neðri hluta Árnessýslu, þar sem sérstök áhersla er lögð á að efla nýsköpun meðal starfandi fyrirtækja. Með samstarfinu skapast aukin nýsköpunarhæfni, ný samstarfsverkefni og sterkari grunnur fyrir framtíðarþróun atvinnulífs á Suðurlandi.

Nýjar fréttir