Hvergerðingurinn Anna Guðrún Halldórsdóttir varð Evrópumeistari í flokki W55 -86 kg. á Evrópumeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum. Keppnin fór fram í Waregem í Belgíu dagana 19. – 27. júní sl..
Anna Guðrún lyfti 58 kg í snörun og 76 kg í jafnhendingu, samtals 134 kg og tryggði sér þar með gullverðlaunin. Þetta er jafnframt þriðji Evrópumeistaratitill hennar í röð. Hún hafnaði jafnframt í 16. sæti af 417 keppendum sem kláruðu keppni þvert á flokka.
Alls kepptu níu keppendur fyrir Íslands hönd og uppskáru íslenska lyftingafólkið okkar tvo Evrópumeistaratitla auk fjölda góðra einstaklingsárangra.

