12.8 C
Selfoss

Selfossdóttir á leið á Heimsleikana í CrossFit

Vinsælast

Selfyssingurinn Bergrós Björnsdóttir hefur tryggt sér sæti á heimsleikunum í CrossFit, CrossFit Games 2026, sem fara fram í San Jose í Kaliforníu í Bandaríkjunum dagana 22.–26. júlí. Bergrós, sem er aðeins 19 ára gömul, verður ein af aðeins 30 konum í heiminum sem keppa í einstaklingsflokki á heimsleikunum í ár. Endanleg úrslit úr síðasta undanúrslitamótinu voru staðfest 29. júní og þar með tryggði Bergrós sér sæti á heimsleikunum.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Bergrós keppir á heimsleikunum í einstaklingsflokki fullorðinna en hún hefur keppt þrisvar sinnum á heimsleikunum í unglingaflokki og vann til bronsverðlauna í flokki 16–17 ára árið 2023. Bergrós verður eini íslenski keppandinn í einstaklingsflokki á heimsleikunum í ár.

CrossFit er ein fjölbreyttasta afreksíþrótt í heimi þar sem keppendur þurfa að búa yfir styrk, úthaldi, sprengikrafti, hraða, liðleika og mikilli tækni og færni í fjölbreyttum íþróttagreinum. Í CrossFit er keppt meðal annars í ólympískum lyftingum, fimleikum, hlaupi, sundi, róðri, fjallahjólreiðum og öðrum krefjandi þrek- og úthaldsraunum. Keppendur vita sjaldnast fyrirfram hvaða þrautir eða greinar bíða þeirra og því þurfa þeir að vera tilbúnir að takast á við nánast hvaða áskorun sem er. Aðeins 30 bestu konur og 30 bestu karlar heims vinna sér þátttökurétt í einstaklingsflokki og fá þar með tækifæri til að keppa á stærsta sviði íþróttarinnar um titilinn Fittest on Earth.

Bergrós keppir undir merkjum CrossFit Reykjavík en býr á Selfossi, þar sem hún sinnir stórum hluta daglegra æfinga sinna hjá Gym800. Á undanförnum árum hefur Bergrós tekið gríðarlegum framförum og náð eftirtektarverðum árangri á alþjóðlegum vettvangi. Markviss uppbygging, ótrúleg elja, vinnusemi, agi, skipulag og mikill keppnishugur hafa allt átt sinn þátt í að skila Bergrós sæti meðal fremstu CrossFit-kvenna heims, þrátt fyrir ungan aldur.

Ísland á einnig fulltrúa í liðakeppni á heimsleikunum. Guðbjörg Valdimarsdóttir frá Hveragerði keppir með liði sínu CrossFit Reykjavík og Stokkseyringurinn Björgvin Karl Guðmundsson verður einnig meðal keppenda með liðinu Kriger. Það vekur athygli að þrír af fremstu fulltrúum Íslands á leikunum í ár eiga allir rætur að rekja til Suðurlands.

Árangur Bergrósar er jafnframt ávöxtur farsæls samstarfs hennar við þjálfara sinn, Eggert Ólafsson. Hann hefur staðið við bakið á henni frá upphafi, fylgt henni á allar keppnir innan lands sem utan og átt mikilvægan þátt í þeirri vegferð sem nú hefur leitt hana á CrossFit Games. Fjölskyldan vill færa Eggerti sérstakar þakkir fyrir ómetanlega stuðning, fagmennsku og óeigingjarna vinnu frá upphafi.

Ólíkt mörgum öðrum afreksíþróttum nýtur CrossFit hvorki stuðnings sérsambands né sérstaks afreksíþróttasjóðs. Kostnaður vegna æfinga, ferðalaga og keppnisþátttöku hefur því að mestu leyti fallið á Bergrós og fjölskyldu hennar.

Fjölskyldan er Friðriki Pálssyni, eiganda Hótel Rangár, og því góða fólki hjá Hótel Rangá afar þakklát fyrir þann mikilvæga fjárhagslega stuðning sem þau hafa veitt Bergrós undanfarin ár. Sá stuðningur hefur skipt sköpum, létt verulega undir með fjölskyldunni og skapað Bergrós bestu mögulegu aðstæður til að láta draum sinn rætast.

Heimsleikarnir í CrossFit fara fram í tuttugasta sinn í ár og er mikil eftirvænting fyrir leikunum, sem verða þeir stærstu og glæsilegustu frá upphafi. Hægt verður að fylgjast með í beinni útsendingu á YouTube-rás CrossFit. Einnig er hægt að fylgjast með Bergrós á Instagram-síðu hennar: https://www.instagram.com/bergrosbjornsdottir/. Síðustu mánuði hefur Bergrós deilt vegferð sinni að heimsleikunum á TikTok-síðu sinni. Fyrir hana er þátttakan draumur sem rætist, enda hefur markmiðið verið skýrt frá því hún steig sín fyrstu skref inn í CrossFit-stöðina á Selfossi.

Nýjar fréttir