11.1 C
Selfoss

Veitingafólk fagnar með risa klaka í miðbæ Selfoss

Vinsælast

Í dag klukkan 15:00 var nýr bjór, Thule Lite, formlega kynntur til leiks og var því fagnað með sérstökum hætti á nokkrum veitingastöðum í miðbæ Selfoss.

Búið er að setja upp glæsilegt íslistaverk þar sem risastór klaki, merktur THULE, geymir fyrstu dósirnar af nýja bjórnum. Til verksins var fenginn sérfræðingur í klakaskúlptúrum og hefur uppsetningin vakið athygli vegfarenda í miðbænum.

Thule Lite verður fáanlegur á fjölmörgum veitingastöðum í Miðbæ Selfoss sem taka þátt í samstarfinu með CCEP.

Margrét Rún Guðjónsdóttir, eigandi Röstí og fleiri staða, segist mjög ánægð með nýja bjórinn: „Ég fékk að smakka Thule Lite aðeins á undan og finnst hann frábær viðbót við bjórflóruna.“

Nýjar fréttir