Nýsköpunarfyrirtækið Livefood ehf. í Hveragerði, eina grænkeraostagerðin á Íslandi, hlaut nýverið veglegan 27.790.000 kr. styrk úr Matvælasjóði til þróunar á nýjum „brauðásti“ – plöntubaseruðum valkosti við hefðbundinn brauðost.
Þessi stóri áfangi byggir á áralangri og markvissri uppbyggingu þar sem nýsköpunarumhverfið á Suðurlandi hefur gegnt lykilhlutverki frá upphafi. Livefood nýtti sér snemma stuðning úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands og var í framhaldinu valið til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Orkídeu, sem lagði dýrmætan grunn að þeim árangri sem fyrirtækið uppsker nú.
„Við erum alsæl með styrkinn. Við erum núna komin upp brekkuna og þetta er heljarinnar lyftistöng og mikil traustsyfirlýsing fyrir okkar fyrirtæki,“ segir Fjóla Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Livefood.

Flókin þriggja áfanga vöruþróun fram undan
Nýi styrkurinn úr Matvælasjóði mun nýtast í flókið og tímafrekt þróunarferli brauðástsins, sem skiptist í þrjá megináfanga. Vegferðin hefst á umfangsmiklum hráefnarannsóknum þar sem meginmarkmiðið er að finna réttu plöntupróteinin og gera tilraunir með margvíslega fitublöndun. Þetta er gert til þess að tryggja að ásturinn fái það rétta, milda bragð og rjómakenndu áferð sem neytendur ætlast til, auk þess sem mikilvægt er að hann karmellist og bráðni fullkomlega við upphitun.
Þegar þeim grunni hefur verið náð tekur við annar áfanginn, sem snýr að prófunum og gerð frumgerða. Í þeirri vinnu er lögð áhersla á að ná fram réttum stífleika og þeim sérstaka teygjanleika sem einkennir hefðbundna osta og skiptir öllu máli í matreiðslu.
Í þriðja og síðasta áfanga fer svo fram lokafínstilling og mat á geymsluþoli þar sem geymslugæði og örverufræðilegt öryggi vörunnar eru tryggð með hjálp náttúrulegra rotvarnarefna. Samhliða því verða hentugar neytendaumbúðir hannaðar fyrir smásölumarkað og undirbúningur hafinn fyrir markvissa markaðssetningu á þessari nýstárlegu sunnlensku afurð.

Byrjaði sem hugmynd í kollinum haustið 2018
Saga Livefood er lifandi dæmi um hversu miklu máli öflugt bakland í heimabyggð skiptir fyrirsprotafyrirtæki á hugmyndastigi. Fjóla dregur ekki dul á að stuðningskerfið á Suðurlandi hafihreinlega komið þeim af stað. Vegferðin hófst haustið 2018 með styrk úr UppbyggingarsjóðiSuðurlands þegar Livefood var aðeins ómótuð hugmynd í kollinum á stofnendum. StuðningurSASS á þeim tíma var upphafið að öllu og gerði það að verkum að teymið hélt áfram, ensjóðurinn hefur reynst þeim dýrmætur bakhjarl og veitt þeim fleiri styrki í gegnum árin.
Árið 2019 fór í að gera alls konar prófanir í þvottahúsinu heima og í nóvember það ár var fyrirtækið formlega stofnað. Í kjölfarið fór árið 2020 í áframhaldandi styrkjaumsóknir og leit aðhúsnæði undir ástagerðina.
Startup Orkídea gaf verkfærin til að vaxa
Hjólin fóru að snúast af alvöru árið 2021 þegar Livefood var valið inn í viðskiptahraðalinnStartup Orkídeu, sem er sérsniðinn vettvangur SASS, Orkídeu og Landsvirkjunar fyrir sjálfbærarlausnir í matvælaframleiðslu. Í hraðlinum fékk teymið þau tæki, tól og vegvísa frá fagaðilum á sviði nýsköpunar sem þurfti til að gera raunhæfar viðskiptaáætlanir.
Sama ár hlaut Livefood þriggja milljóna króna styrk úr Matvælasjóði til að vinnaviðskiptaáætlun, sem var lykillinn að því að sannfæra bankann og Byggðastofnun um lán tilhúsnæðiskaupa í Hveragerði. Þessu til viðbótar hleyptu þau af stokkunum Karolína Fund hópsöfnun, gerðu samning við Vinnumálastofnun um nýsköpunarráðningar og hlutu stuðning fráHögum í gegnum nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna. Fjóla bendir á að árið 2021 hafi kostað blóð, svita og tár þar sem öll þessi umsóknarvinna fór fram meðfram fullum, hefðbundnum störfum.
Gufan í Hveragerði lífæð framleiðslunnar
Livefood leggur ríka áherslu á sjálfbærni og lágmörkun kolefnisspors. Fyrirtækið nýtir dýrmætajarðvarmagufu í Hveragerði við upphitun á húsnæði sínu og stefnir að því að þróa tækjabúnað tilað nýta hana beint við ástagerðina í framtíðinni. Áform um breytingar á veitukerfum bæjarinsvalda hins vegar áhyggjum innan fyrirtækisins, þar sem til stendur að taka gufuna af fyrirtækjumí Austurmörkinni næsta vor og færa þau yfir á tvöfalt hitaveitukerfi.
„Það er okkur mjög mikilvægt að hafa höfuðstöðvar Livefood í Hveragerði og hafa aðgengi aðgufunni,“ útskýrir Fjóla. „Við nýtum hana núna við upphitun á öllu húsnæðinu og er það mun hagkvæmara heldur en tvöfalda hitaveitukerfið. Seinna meir viljum við nýta hana beint viðástagerðina og höfum við skoðað tækjabúnað sem yrði þróaður með það í huga. Við vildum þóekki fara út í kostnaðarsamar breytingar á tækjabúnaði sökum þessara áforma. Það verðurvonandi hætt við þau enda er gufan fyrirtækjunum mjög mikilvæg.“
Samstarf og hnetulausir valkostir fyrir skóla
Sérstaða Livefood felst í því að nota kartöflur og kartöflusterkju sem grunn í ástana, sem gerir þáhnetu– og mjólkurlausa. Þegar nýi brauðásturinn kemur á markað geta skólar og leikskólar, semeiga að vera hnetulausir, nýtt hann fyrir börn með mjólkuróþol eða þau sem kjósa grænkerafæði. Til að anna mikilli eftirspurn á stórkaupendamarkaði á þremur helstu tegundunum – pizzuásti, veta-ásti og hreinum kremásti – á Livefood í farsælu samstarfi við fyrirtækið Í einum grænum, sem er dótturfélag Sölufélags garðyrkjumanna. Samstarfið breytti öllu fyrir afkastagetuLivefood, á meðan fyrirtækið heldur áfram að framleiða alla aðra sérhæfðari ásta sjálft í Hveragerði.

Stefna á smásölumarkað og heimsyfirráð
Livefood býður þegar upp á fjölbreytt úrval ásta, svo sem kryddásta, smurásta og árstíðabundnarvörur á borð við hinar vinsælu Ellingóton grænkerasteikur um jól og páska. Framtíðaráformfyrirtækisins eru skýr en stefnt er að því að koma vörunum í einstaklingsvænum umbúðum á smásölumarkaðinn hér á landi á árinu 2026. Þegar þeim áfanga hefur verið náð liggur leiðin útfyrir landsteinana. „Það er ekkert annað í kortunum hjá okkur heldur en heimsyfirráð Livefoodástanna,“ segir Fjóla hress í bragði.
Að lokum hvetur Fjóla aðra sunnlenska frumkvöðla sem luma á góðri hugmynd til að láta vaða: „Það þarf að vanda til verka og gera raunhæfar áætlanir. Nýtið ykkur sérfræðikunnáttu þeirrasem starfa við nýsköpun og hikaðu ekki við að fá ráðgjöf. Nýtið ykkur stuðningskerfið, þar er frábært fólk á hverjum stól sem vill hjálpa og vill sjá ykkur sigra!“
Stefán Friðrik Friðriksson/Orkidía

