Það eru alltaf ákveðin kaflaskil í starfi Fræðslunetsins á vorin þegar nemendur okkar ljúka námi af námsbrautum FA (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins) og hafa um leið náð þeim markmiðum sem þeir settu sér í upphafi námsins.
Að þessu sinni luku fimm nemendur námi í Menntastoðum, sex í Menntagrunni, átta luku námi í Félagsliðagátt, níu á Leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú og að lokum 16 af námsbrautinni Stökkpalli.
Útskriftarathafnir voru haldnar í Gömlu Búð á Höfn 27. maí og á Hótel Selfossi 28. maí. Það voru hátíðarbragur yfir þessum dögum þar sem áfanganum var fagnað innilega af námsmönnum og aðstandendum þeirra.
Við athöfnina á Selfossi flutti Eyjólfur framkvæmdastjóri Fræðslunetsins stutt ávarp þar sem hann nefndi að núna væru nemendur búnir að láta drauma sína rætast og nýjir draumar eflaust orðið til. Fyrrum nemandi Fræðslunetsins af námsbrautinni Menntastoðum, Einar Þór Guðmundsson flutti tvö lög og að lokum flutti Ásta Björg Jósepsdóttir ávarp fyrir hönd nemenda. Hún nefndi meðal annars hvað námið hjá Fræðslunetinu hafi gefið henni aukna trú á eigin getu en hún var áður búin að prófa fjarnám við nokkra framhaldsskóla. Það sem henni fannst henta sér mjög vel við skipulag námsins hjá Fræðslunetinu var að einungis er einn áfangi kenndur í einu og því gott að einbeita sér alfarið að þessum eina áfanga. Eftir námið í Menntastoðum ætlar Ásta að halda áfram ótrauð í námi hjá Keili – Háskólabrú.
Það er gaman að geta þess að nemendur Fræðslunetsins koma víða að, ekki bara af starfssvæðinu heldur voru nokkrir nemendur í vetur af Höfðuborgarsvæðinu en kennslan ferfram í dreifnámi á Teams.
Innritun fyrir nám á haustönn er þegar hafin og eins og áður er hægt að velja um nokkrar námsbrautir og áfanga á framhaldsskólastigi.
Við óskum öllum útskriftarnemendum okkar hjartanlega til hamingju með áfangann og hlökkum til að taka á móti nýjum áhugasömum námsmönnum.




