13.9 C
Selfoss

Litríkt og gefandi Erasmus+ ár í Víkurskóla

Vinsælast

Afstaðið skólaár hefur verið litríkt og annasamt innan Erasmus+ verkefnis Víkurskóla. Strax í september fengum við heimsókn frá vinaskóla okkar í Þýskalandi þegar hópur nemenda úr Mittelschule Wörth kom og dvaldi í viku hjá okkur. Þar sem árið 2025 var evrópuár um stafræna borgaravitund í menntun þótti okkur við hæfi að vinna sameiginlega að verkefnum tengdum því. Við héldum vinnustofu með nemendum beggja skóla þar sem unnið var með verkefni og umræður tengdar netheilbrigði. Nemendur ræddu meðal annars netvenjur, hvaða aðferðir eru notaðar til þess að lengja viðveru okkar á samfélagsmiðlum, netöryggi og fleira. Sem lokaafurð sömdu nemendur lítinn bækling handa foreldrum um neteinelti og hvernig á að bregðast við ef maður verður þess var. Fyrir utan þessa vinnu unnu nemendur sjálfsþekkingarverkefni í tengslum við uppeldi til ábyrgðar, auk þess sem þeir fóru í fjallagöngu, renndu sér í sviflínu (zipline) og fóru á sýninguna Lava Show.

Á vorönninni var svo komið að okkur að heimsækja þá í Þýskalandi. Mittelschule Wörth er í bænum Wörth an der Donau í Bæjarlandi, skammt frá Regensburg og München. Þar fengum við að hitta bæjarstjórann sem fór yfir með okkur helstu áskoranir sem bærinn glímir við þegar kemur að sjálfbærni hvað varðar orku- og umhverfismál. Í skólanum fengum við fræðslu um ágengar dýrategundir, hvaða áhrif þær hafa á dýralífið á svæðinu og hvernig unnið er að því að vernda tegundir í útrýmingarhættu. Í framhaldinu heimsóttum við dýragarð í bænum Straubing þar sem við gátum séð margar af umræddum tegundum. Annað sem við gerðum í ferðinni var að fara í bæjarferð til Regensburg, heimsækja BMW-safnið og Deutsches Museum í München, auk þess sem við skoðuðum gamla bæinn í München. Þar fóru nemendur í skemmtilegt „sjálfsmyndarallý“ þar sem þeir áttu að finna ákveðnar byggingar og staði og taka hópmynd af sér þar. Síðasta daginn í skólanum tókum við þátt í alþjóðlegum menningardegi þar sem nemendur af öllum þjóðernum í skólanum mættu í dæmigerðum klæðnaði fyrir sitt land og buðu upp á matarsmakk. Við Íslendingarnir mættum að sjálfsögðu í lopapeysum (í 23°C hita!) og buðum upp á flatkökur með hangikjöti, harðfisk með smjöri og sykraðar pönnukökur. Að auki útbjuggu íslensku nemendurnir kynningarstand þar sem þeir kynntu Ísland og helstu sérkenni landsins.

Það hefur svo sannarlega verið fróðlegt og gefandi ár hjá okkur. Við höfum eignast góða vini, fengið nýjar hugmyndir og innblástur, og myndað tengsl sem efla okkur í okkar faglega starfi.

Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir Erasmus+ verkefni skólans á næsta skólaári og stefnir það í að verða jafn viðburðaríkt og þetta árið. Þá mun áhersla Víkurskóla vera á heilsu og vellíðan og stefnum við á að vinna að verkefnum tengdum því í skólaheimsóknum okkar.

Sabina Victoria Reinholdsdóttir, kennari við Víkurskóla

Nýjar fréttir