10.6 C
Selfoss

Lúkas Aron í lokahópi U20 landsliðs Íslands í körfubolta

Vinsælast

Hvergerðingurinn Lúkas Aron Stefánsson hefur verið valin í lokahóp U20 ára landslið karla í körfubolta, en liðið mun taka þátt í Evrópumóti sem fram fer í Bratislava í Slóvakíu dagana 8.–20. júlí næstkomandi.

Lúkas, sem æfir með Hamri, hefur sýnt góða frammistöðu á síðustu misserum og er valið í hópinn mikilvægt skref í hans íþróttaferli.

Mótið í Bratislava er eitt af stærstu verkefnum sumarsins fyrir liðið, þar sem sterkustu leikmenn Evrópu í aldursflokknum koma saman til keppni. Spennandi verður að fylgjast með íslenska liðinu og framgöngu Lúkasar Arons á mótinu.

Nýjar fréttir