10 C
Selfoss

Framkvæmdanefnd Landsmóts 50+ hefur störf

Vinsælast

Eins og fram hefur komið mun Landsmót UMFÍ 50+ árið 2027 fara fram á Hellu.

Stjórn HSK ákvað á fundi þann 29. maí sl. að óska eftir tilnefningum frá Umf. Heklu, Rangárþingi ytra og UMFÍ í níu manna framkvæmdanefnd Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður á Hellu sumarið 2027.

Búið er að ganga frá  nefndarskipan. Hana skipa:

  • Frá HSK: Guðmundur Jónasson, Guðríður Aadnegard, Anný Ingimarsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
  • Frá Umf. Heklu: Ástþór Jón Ragnheiðarson og Ösp Viðarsdóttir
  • Frá UMFÍ: Ragnheiður Högnadóttir
  • Frá Rangárþingi ytra: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson sveitarstjóri og Jóhann G. Jóhannsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sveitarfélagsins.

Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn á Hellu 9. júní sl. Nefndarmenn mættu allir á fundinn og var einn þeirra staddur í Grikklandi, en tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Á fundinum var samþykkt að Guðmundur Jónasson verði formaður nefndarinnar og Anný Ingimarsdóttir ritari. Nefndin ræddi um nokkrar mögulegar dagsetningar fyrir mótið árið 2027. Að loknum umræðum var nefndin sammála um að mótið yrði haldið dagana 25.–27. júní 2027.

Á fundinum var rætt um þau verkefni sem nefndin þarf að vinna að á næstu mánuðum. Þar má nefna kynningarmál í tengslum við Landsmótið á Hrafnagili í sumar, ákveða keppnisgreinar og hefja samtal við fyrirtæki á svæðinu varðandi mögulegt samstarf og stuðning við mótið.

Nýjar fréttir