12.6 C
Selfoss

Fuglaskoðun við Sogið

Vinsælast

Laugardaginn 13. júní kl. 14:00 mun Tandri Gauksson félagi  í Fuglavernd leiða áhugasama og líta og hlusta eftir fuglum við Sogið  undir Ingólfsfjalli.

Tekið verður á móti áhugasömum fuglavinum á bílastæði Alviðru.

Gengið verður af stað kl. 14 niður að Sogi og hlustað og skimað eftir fuglum.  Gangan er létt en hafa verður í huga, að við fuglaskoðun er mikið staðið,  hlustað og horft, og því mikilvægt að vera vel klædd. Fuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma.

Gott er að vera í stígvélum eða góðum gönguskóm.

Eftir fuglaskoðun er boðið uppá kaffi, kakó og með því á bænum Alviðru í boði Alviðrustjórnarinnar, gestgjafinn er að þessu sinni Auður I. Ottesen sem situr í stjórn Alviðru. Það verður að sjálfsögðu spjallað áfram um fugla. Hægt verður að skoða uppstoppaða fugla sem eru geymdir í bænum.

13:30 Tekið á móti gestum á Alviðru.
14:00 Fuglaskoðun hefst.
16: 00 Kaffi, kakó og spjall

Gott að hafa með sér: Sjónauka.

Munið að vera klædd eftir veðri.

Leiðavísir

Alviðra er umhverfisfræðsusetur Landverndar norðan Selfoss. Beygt til norðurs af Suðurlandsvegi á Biskupstungnabraut og eknir um 6 km þar til komið er að vegamótum og beygt til vinstri á Grafningsveg og aftur til vinstri á heimreið Alviðru.  Ef þið hafið ekið yfir brúna á Soginu þá eruð þið komin of langt.

Frétt frá Alviðru

Nýjar fréttir