SæsaBar á Flúðum hefur lokað dyrum sínum en munu aðstandendur barsins nú í staðinn opna veitingahús á Flúðum, Grund kaffi – bar – grill. Haldin verður opnunarhátíð næstkomandi föstudag þann 12. júní.
Bára Sævaldsdóttir og Bergsveinn Theodórsson rekstrarstjórar Sæsabars segja reksturinn hafa gengið vel síðan barinn var opnaður fyrir nokkrum árum. Sæsabar hefur alla tíð verið opinn sem bar á kvöldin, en jafnframt hafa verið haldnir ýmsir fjölskylduvænni viðburðir í gegnum árin.
Ákvörðun hefur nú verið tekin um að færa reksturinn yfir í Grund, þar sem tækifæri gafst til að flytja í stærra húsnæði. Grund hefur verið í lágmarksrekstri undanfarin ár, en nú stefna nýjir eigendur á að opna staðinn og nýta hann til fulls.
Bergsveinn segir þau afar þakklát fyrir viðtökurnar sem þau hafa fengið.
„Við erum heppin hvað heimamenn eru ánægðir og það er gaman að fá að vinna með fólkinu í hreppnum,“ segir Bergsveinn eða Bessi eins og flestir þekkja hann.
Boðið verður upp á bæði kalda og heita drykki, kökur og sitthvað fleira. Enn er verið að móta rekstrarformið en hugur stendur til að bjóða upp á matseðil í framtíðinni. Segir Bessi ætla að þróa matseðilinn eftir hvernig gengur.
Gangi áætlanir eftir mun Kaffi Grund opna núna um helgina, föstudaginn 12. júní, samhliða upphafi afmælishátíðar Hrunamannahrepps sem verður 1150 ára í ár. Af því tilefni mun Hlynur Snær trúbador mæta á svæðið með gítarinn og sjá um tónlistarflutning.
Bergsveinn segir mikla tilhlökkun ríkja að taka á móti gestum í nýju húsnæði og hefja nýjan kafla í starfseminni á Flúðum.
„Við hlökkum til að taka á móti gestum og hvetjum Sunnlendinga sem og aðra gesti til að kíkja við og njóta notalegrar stemningar með okkur á Grund.“

