EFLA hefur gert skipulagsbreytingar á Suðurlandi sem miða að því að styrkja starfsemi fyrirtækisins, viðhalda góðri þjónustu í nærumhverfinu og nýta aukin tækifæri á svæðinu. Anne Bruun Hansen hefur verið ráðin svæðisstjóri EFLU á Suðurlandi og tekur við starfinu af Friðþóri Sófusi Sigurmundssyni.
Anne Bruun Hansen hefur starfað hjá EFLU á Suðurlandi í rúman áratug og gegnt lykilhlutverki í fjölbreyttum verkefnum. Hún lauk meistaragráðu í arkitektúr frá ETH í Zürich og hefur undanfarin ár verið fyrirliði teymis skipulagsmála á Suðurlandi. Anne býr yfir víðtækri þekkingu á starfsemi, verkefnum og viðskiptavinum fyrirtækisins á svæðinu.
Í nýju hlutverki mun Anne leggja áherslu á að starfsstöðin haldi uppi góðri þjónustu við nærumhverfið og styrkja samvinnu við fyrirtæki og aðila á svæðinu með það að markmiði að styrkja stöðu fyrirtækisins enn frekar á Suðurlandi.
„Ég tek við þessu nýja hlutverki með miklum metnaði og hlakka til að leiða áfram öflugt starf EFLU á Suðurlandi. Þar starfa sérfræðingar með dýrmæta þekkingu á svæðinu og fjölbreytta reynslu og ég sé mikil tækifæri til að styrkja okkur enn frekar og vinna náið með viðskiptavinum og samstarfsaðilum”, segir Anne.
Friðþór Sófus Sigurmundsson, sem gegnt hefur starfi svæðisstjóra á Suðurlandi, tekur við nýju hlutverki innan EFLU þar sem hann mun leiða uppbyggingu og þróun Kort.is. Kort.is er hugbúnaðarlausn EFLU fyrir gagnahýsingu og gagnvirka kortasjá, sem nýtist sveitarfélögum, fyrirtækjum og einkaaðilum og gerir notendum kleift að nálgast landupplýsingar á einfaldan og skilvirkan hátt. Mikil eftirspurn er eftir aðgengilegum og notendavænum landupplýsingum og fellur þessi áhersla að stefnu EFLU um nýsköpun og tæknilega þróun.
„Með þessari breytingu styrkir EFLA forystu sína á Suðurlandi og skapar góðan grunn fyrir áframhaldandi vöxt og enn betri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila á svæðinu“ segir Kristín Friðgeirsdóttir framkvæmdasjóri EFLU.
EFLA á Suðurlandi rekur starfsstöðvar á Selfossi, Hellu og í Vestmannaeyjum þar sem boðið er upp á alhliða verkfræðiráðgjöf. Þar starfa öflug og samstillt teymi sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði hönnunar, skipulags og framkvæmda. Sérfræðiþekking EFLU á svæðinu nær meðal annars til arkitektúrs, burðarþolshönnunar, rafmagns- og lagnahönnunar, auk sérhæfingar í gatnahönnun, merkjalýsingum og landmælingum. Skipulagsmál eru einnig veigamikill þáttur í starfseminni, þar sem unnið er að gerð aðal- og deiliskipulags með heildræna sýn á þróun svæða að leiðarljósi.
EFLA er þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns í sjö löndum. Höfuðstöðvar EFLU eru í Reykjavík en fyrirtækið rekur einnig öflugar svæðisskrifstofur í öllum landshlutum. Þá á EFLA dótturfyrirtæki í sex löndum utan Íslands: Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Póllandi, Frakklandi og Skotlandi.

