15.6 C
Selfoss

Risaskjárinn snýr aftur í miðbæ Selfoss

Vinsælast

Risaskjárinn verður reistur á Brúartorgi í miðbæ Selfoss á næstu dögum og verður þetta fjórða árið í röð sem knattspyrnuunnendur geta fylgst með stórmótinu undir berum himni í hjarta bæjarins.

Undanfarin ár hefur skjárinn notið gríðarlegra vinsælda, bæði meðal heimamanna og ferðafólks, íslensks sem erlends. Gestir geta sest niður á torginu, notið matar og drykkja frá veitingastöðum svæðisins og fylgst með leikjunum í sannkallaðri stemningu.

„Þegar veðrið leikur við okkur er hér gjörsamlega troðfullt. Fólk mætir snemma til að tryggja sér sæti og stundum hefur verið barist um bestu staðina. Við erum því að bæta við fleiri bekkjum og undirbúa okkur fyrir mikinn áhuga. Þetta er langt mót, fullt af stórleikjum og allt bendir til þess að sumarið sé að fara af stað af krafti, þannig að við búumst við frábærri stemningu hér í miðbæ Selfoss,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson hjá Miðbæ Selfoss.

Fyrir þá sem vilja tryggja sér sæti er hægt að bóka fyrir hópa hjá Miðbar, þar sem boðið er upp á sæti í Möggu Lounge, glæsilegu rooftop-svæði með útsýni yfir torgið og skjáinn. Þá býður MAR Seafood einnig upp á um tuttugu borð með góðu útsýni yfir mannlífið og leikina.

Þegar talið berst að því hvaða þjóð Davíð styður á mótinu stendur ekki á svarinu.

„Ég hef haldið með Portúgal síðan árið 2000 þegar Luís Figo var upp á sitt besta. Það hefur ekkert breyst og ég held áfram að trúa því að Portúgal fari alla leið. Að mínu mati er heimsmeistaratitillinn einfaldlega skrifaður í skýin hjá þeim,“ segir Davíð brosandi.

Nýjar fréttir