Nú hefur mikið verið rætt og hugleitt um betri nýtingu á strætó innan Árborgar. Hver verður að keyra þessar leiðir? Nýlega var opnað nýtt útboð og ekki komin endanleg niðurstaða um hver keyrir. Að minnsta kosti er ekki búið að skrifa undir þegar þetta er ritað 30. maí og mér skilst að það hafi verið 800 þúsund króna munur á þessum tveim tilboðum. Sá aðili, GT Guðmundur Tyrfingsson, hefur verið að keyra þessar leiðir undanfarin ár, með ágætum árangri. En það hefði mátt vera meiri metnaður ásamt umgjörð og upplýsingum einmitt til að auka ánægju og nýtinguna. Vonandi fer það svo að sá sem fær þennan akstur geri betur eins og mun koma fram í greininni ásamt forsvarsmönnum Sveitarfélagsins Árborgar.
En að kjarna málsins er að ég hef töluvert notað þennan ferðamáta og líkað vel og finnst hann skemmtilegur. En mér finnst nýtingin frekar slök að undanskildum álagstímum tengdum vinnu og skóla. Það væri hægt að gera tilraun til auka og til þess þarf að aðlaga þjónustuna að notendum og sé ég fyrir mér þá kringum íþróttaæfingar og æskulýðsstarf barna ásamt félagsmiðstöðum sem ungmenni sækja. Komið hefur upp sú hugmynd að endastöð vagnsins frá Eyrarbakka og Stokkseyri sé við Stekkjarskóla! Mér finnst það vægast illa hugsuð hugmynd og engan veginn verið að hugsa um hag notenda og þeirra sem keyra vagninn. Þar er hvorki skjól, húsnæði né salerni fyrir farþega og bílstjóra sem á rétt á hvíld til að nærast. Þessir þættir hér sem ég nefni þurfa að vera í lagi sé ætlunin að hafa þetta sem endastöð strætó. Þessi grunnaðstaða kostar mikla peninga sem væri betur varið í annað sem tengist þessari þjónustu.
Mér skilst að þetta sé í höndum Gunnars Eysteins Sigurbjörnssonar, deildarstjóra frístundaþjónustu, sem sé alltaf að hugsa þetta fram og aftur með takmörkuðum árangri ásamt sitjandi bæjarstjórn ásamt framkvæmdaraðila sem sér um aksturinn.
Nefnt hefur verið að hafa endastöð við íþróttavöllinn við Engjaveg og er sú hugmynd enn ein vitleysan og engan veginn framkvæmanleg svo vit sé í á nokkurn hátt, því seinnipartinn virka daga og um helgar er mikið um íþróttamót og æfingar, ýmist knattspyrna, frjálsar íþróttir eða handbolti, hinum megin við Engjaveg í Vallaskóla. Þarna er ekki einfalt og í raun vonlaust að finna bílastæði fyrir 20 til 50 manna rútu, og þótt það sé merkt stæði fyrir strætó þá vitum við hvernig umferðarmenning er hér á Íslandi, takmörkuð virðing er borin fyrir merkingum. Eiga svo farþegar og bílstjóri að hlaupa upp á íþróttavöll til að bíða í skjóli og til að fara á salerni? Því það er engin slík aðstaða við íþróttavöllinn frekar en við Stekkjarskóla.

Svo vantar ferðaupplýsingar í ramma á stoppistöðvum og jafnvel er þeim ekki skipt út verði breytingar á ferðatíðni. Meira að segja var ferðin frá upphafsstað vagnsins við N1 tekin út sem fór kl. 20:25 tekin út á síðasta ári og ekki skipt um blöð í römmum af hálfu framkvæmdaraðila GT, Guðmundar Tyrfingssonar. Svo eru tvær samliggjandi ferðir frá N1 kl. 17:37 og 18:48 en vagninn er í um 70 mínútur standist hann tímaáætlun. Vagninn hefur 0 til 5 mín. til að fara í seinni ferðina. Þessi seinni ferð er í raun ónýt því fjölskyldur eru yfirleitt að borða saman heima kl. 19. Það hefði verið mikið sniðugra að halda inni tveimur ferðum eftir kl. 19, sé vilji til að aðlaga þjónustuna fyrir notendur. Svo varðandi þá hugmynd að hafa 1 til 2 vagna sem eru bara á Selfossi er sniðugt en það þarf að útfæra það nánar og fer það eftir fjölskyldusamsetningu á Selfossi hvar hann keyrir og hvaða stofngötur en hann á þá að hafa þétta tíðni í kringum íþróttir og æskulýðsstarf.

Mín tillaga eða hugmynd er að vagninn sem kemur frá ströndinni eigi eftirtaldar stoppistöðvar: nr. 1 við Nettó Eyrarvegi, nr. 2 við Ráðhús/Krónuna/Bókasafn, nr. 3 við sundlaugina við Tryggvagötu, nr. 4 við Íþróttavöllinn við Engjaveg og nr. 5 á Larsenstræti við Byko eða Húsasmiðjuna. Núverandi stoppistöð á Langholti er illa staðsett í umferðinni og svo færi vagninn áfram í hringtorg austan við Bónus því það getur verið afar erfitt að þvera Austurveginn sem einmitt riðlar tímaáætlun oft. Svo er síðasta stopp við N1 þaðan sem allir vagnar fara áfram til Reykjavíkur, uppsveitir, Hellu, Hvolsvöll, Vík og Höfn í Hornafirði. Þannig myndast tenging við aðra vagna. Sú tenging er ekki fyrir hendi sé önnur endastöð einhvers staðar úti í bæ. Svo fer Árborgarvagninn öfugan hring frá N1 og byrjar á stoppistöð 5,4,3,2,1 og þaðan á Eyrarbakka og Stokkseyri. Svo mætti koma fyrir gaumljósi sem farþegi í Tjarnarbyggð gæti ýtt á takka og það logaði í t.d. 5 mín. til að bílstjóri sæi hvort farþegi sé að bíða þar því það getur verið erfitt að sjá fólk þar sem það er oftast dökkklætt og jafnvel í skammdeginu.
Eins mætti seinka síðasta vagninum sem fer frá N1 kl. 21:43 til t.d. 22:15 svo fólk sem fer í miðbæinn að borða og fá sér drykk nái svo síðasta vagninum heim aftur á ströndina. Þetta á eins við um börn og unglinga sem t.d. fara í bíó.
Til að móta þessa hugmynd væri gott ef aðilar frá akstursfyrirtækinu og Sveitarfélaginu Árborg myndu líta upp úr Excel-skjalinu og tölvunni og hafa viðkomandi bílstjóra með í mótun á þessari þjónustu. Mín tillaga er að þeir sem skipuleggja þetta allt að taka sér dag og vera um borð í vagninum og sjá í rauntíma hvað má betur fara og hvað er gott! Ásamt því að hlusta á bílstjóra því þeir þekkja þarfir farþega langbest.
Svo mætti skoða það hvort bæjarstjórn Ölfuss vilji koma inn í þetta fyrirkomulag, sé vilji hjá þeim væri best að vagninn fari um Óseyrarbrú því þetta er eitt og sama atvinnusvæði og líka þeirra sem þurfa á þjónustu að halda beggja megin Óseyrarbrúar. Mér skilst að það sé strætó Þorlákshöfn-Hveragerði sem er ágætt en best væri að tengingin fyrir Árborg og Ölfus færi um Óseyrarbrú. Þessi hugmynd mín kæmi sér afar vel þegar Smyrilline kemur með farþegaferju í Þorlákshöfn sem er ekki spurning hvort heldur hvenær. Þetta er kannski seinni tíma mál en samt gott að hugleiða líka.
Að lokum mætti merkja Árborgarvagnana skýrt á báðum hliðum, Árborgarstrætó er frír valkostur og setja upp strætóskýli á allar stoppistöðvar því fátt er leiðinlegra en að bíða eftir strætó í roki, rigningu og snjókomu eins og íslensk veðrátta er hjá okkur. Lykilatriði er að hafa skýrar upplýsingar í römmum á stoppistöðvum því ekki eru allir færir í internetinu eins eldra fólk og erlendir ferðamenn, sem þurfa líka að skilja hvernig þessi þjósta virkar.
Að lokum væri gaman að heyra sjónarmið þeirra sem fara með þessi mál öll, t.d. hér í blaðinu, eða á Facebook íbúar Árborgar.
Sigurbjörn Snævar Kjartansson áhugamaður um betri Árborg

